Saksóknarar Ríkissaksóknari vill að vararíkissaksóknara verði vikið úr starfi tímabundið. Erindi þess efnis er í skoðun í dómsmálaráðuneytinu.
Saksóknarar Ríkissaksóknari vill að vararíkissaksóknara verði vikið úr starfi tímabundið. Erindi þess efnis er í skoðun í dómsmálaráðuneytinu. — Morgunblaðið/Kristinn
Ólafur E. Jóhannsson oej@mbl.is

Ólafur E. Jóhannsson

oej@mbl.is

„Ég tel að dómsmálaráðherra sé að gera hárrétt með því að taka sér þann tíma sem nauðsynlegur er til að bregðast við, þannig að það standist öll viðmið, þ. á m., lögbundin viðmið um afgreiðslu málsins,“ segir Bjarni Benediktsson forsætisráðherra í samtali við Morgunblaðið.

Leitað var eftir viðbrögðum hans við bréfi ríkissaksóknara sem hann sendi dómsmálaráðherra á dögunum, þar sem þess var farið á leit að Helga Magnúsi Gunnarssyni vararíkissaksóknara yrði vikið tímabundið úr starfi vegna orðfæris hans í opinberri umræðu, eins og komist var að orði í téðu bréfi.

„Á meðan málið er til meðferðar hjá dómsmálaráðherra, ætla ég ekki að fara að leggja henni línur um afgreiðslu málsins,“ segir hann.

„Á þessum tímapunkti get ég eingöngu sagt að mér finnst það vera mjög alvarlegt mál þegar gerð er atlaga að æðstu embættismönnum í stjórnkerfi Íslands með hótunum. Það er mjög alvarlegt mál að slíkt gerist í okkar samfélagi og stjórnkerfið í heild sinni verður að senda út þau skýru skilaboð að slíku verði mætt af fullum þunga og af fullri alvöru,“ segir Bjarni.

„Erindi ríkissaksóknara tengist þessu þó aðeins óbeint og verður að fá sína meðferð hjá dómsmálaráðherra og hún þarf að fá frið til að vinna það til enda og ég held að það sé skynsamlegt hjá henni að taka sér þann tíma sem nauðsynlegur er til þess, m.a. hlusta eftir sjónarmiðum,“ segir hann.

Spurður um hvort eðlilegt sé að víkja manni frá störfum sem hefur mátt þola ítrekaðar hótanir, jafnvel þótt hann hafi látið orð falla sem túlkuð eru á versta veg, segir Bjarni:

„Þetta er kjarni þess sem dómsmálaráðherra er að fást við. Ég ætla bara að segja að mér finnst það skipta öllu máli að þau skilaboð komi skýrt frá íslenska stjórnkerfinu að það verður ekki liðið að embættismönnum sé hótað eða ógnað með einhverjum hætti. Þau skilaboð þurfa alltaf að berast frá íslenska stjórnkerfinu. En þetta er að einhverju leyti mál sem varðar innbyrðis samskipti í embætti ríkissaksóknara og er nú til úrlausnar í dómsmálaráðuneytinu.“