Kaffi Starbucks-kaffihús í New York. Opna á slíkt kaffihús hér.
Kaffi Starbucks-kaffihús í New York. Opna á slíkt kaffihús hér.
Berjaya Food International (BFI) stefnir að því að opna Starbucks-kaffihús á Íslandi fyrri hluta næsta árs. Þetta kemur fram í svari BFI við fyrirspurn Morgunblaðsins. Eins og fram kom í umfjöllun mbl.is um helgina hefur BFI tryggt sér rekstrarréttinn á Íslandi, í Danmörku og Finnlandi

Berjaya Food International (BFI) stefnir að því að opna Starbucks-kaffihús á Íslandi fyrri hluta næsta árs. Þetta kemur fram í svari BFI við fyrirspurn Morgunblaðsins.

Eins og fram kom í umfjöllun mbl.is um helgina hefur BFI tryggt sér rekstrarréttinn á Íslandi, í Danmörku og Finnlandi. Í tilkynningu sem send var á fjölmiðla um helgina kemur fram að BFI ætli sér stóra hluti í norrænu ríkjunum þremur.

Í svari BFI við fyrirspurn blaðsins segir enn fremur að þessi stækkun á starfseminni sé stór áfangi fyrirtækið. Það komi nú þegar að rekstri hótela á Íslandi. Gefi sá rekstur þeim betri innsýn inn í markaðinn hér þegar kemur að opnun kaffihúsakeðjunnar.

Starbucks er stærsta kaffihúsakeðja í heimi, en fyrsta kaffihúsið opnaði árið 1971 í Seattle. Árið 2023 rak keðjan 38.038 kaffihús í 86 löndum víða um heiminn, en þar af voru 17.810 þeirra í Bandaríkjunum en 20.228 í öðrum ríkjum. Fyrirtækið hefur fært út kvíarnar á erlendum mörkuðum jafnt og þétt frá árinu 1987, þegar fyrsta Starbucks-kaffihúsið opnaði í Kanada. Árið 1996 hóf fyrirtækið innreið sína í Japan, og árið 1998 opnaði fyrsta Starbucks-kaffihúsið í Evrópu, þegar Starbucks hóf rekstur í Bretlandi.