Náttúruhamfarir Tjónið sker sig frá öðrum jarðskjálftatjónum eins og til dæmis Suðurlandsskjálftunum árin 2000 og 2008 þar sem meira er um altjón.
Náttúruhamfarir Tjónið sker sig frá öðrum jarðskjálftatjónum eins og til dæmis Suðurlandsskjálftunum árin 2000 og 2008 þar sem meira er um altjón. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Áætlað heildartjón á mannvirkjum í Grindavík gæti numið allt að 16-17 milljörðum króna. Náttúruhamfaratrygging hefur metið tjón á íbúðarhúsum í Grindavík upp á 6,5 milljarða en á eftir að klára mat á tjóni á innviðum eins og veitum, hafnarmannvirkjum og atvinnuhúsnæði

Óskar Bergsson

oskar@mbl.is

Áætlað heildartjón á mannvirkjum í Grindavík gæti numið allt að 16-17 milljörðum króna. Náttúruhamfaratrygging hefur metið tjón á íbúðarhúsum í Grindavík upp á 6,5 milljarða en á eftir að klára mat á tjóni á innviðum eins og veitum, hafnarmannvirkjum og atvinnuhúsnæði.

Þetta kom fram í máli Jóns Örvars Bjarnasonar, sviðsstóra vátryggingasviðs Náttúruhamfaratrygginga, á málþingi um jarðskjálftahættu á Íslandi sem haldið var á vegum Verkfræðingafélags Íslands.

Eftir að klára mat á innviðum

Heildarvirði vátryggðra eigna í Grindavík var metið á rúma 150 milljarða króna þegar hamfarirnar byrjuðu í nóvember. Tjónið sem orðið hefur á íbúðarbyggingum nemur nær 6,9 milljörðum. Stærsti hlutinn, 6,5 milljarðar, er vegna tjóns á íbúðarhúsnæði, 240 milljónir eru lausafé og rúmar 100 milljónir vegna hluta af tjóni á innviðum.

Hann segir að það eigi eftir að klára mat á veitukerfum, hafnarmannvirkjum og verðmætum húseignum eins og iðnaðarhúsnæði.

„Við erum að fá mikið af altjónshúsum þar sem burðarvirkið brotnar og skemmist þar sem þau standa nálægt sprungunum. Það er ekki hristingur sem brýtur þau, heldur er það skekkja og aflögun á landinu sem veldur því að þau brotna og skemmast. Það er búið að skoða allar eignir sem urðu fyrir skemmdum, en endanlegt mat í öllum málum liggur ekki enn fyrir. Talan 6,9 milljarðar á eftir að hækka þar sem ekki er búið að meta tjón á veitukerfum, hafnarmannvirkjum, götum og atvinnuhúsnæði. Heildarupphæðin gæti numið 16-17 milljörðum, með þeim fyrirvara að ekkert nýtt komi fram eða gerist.“

Ólíkt öðrum skjálftatjónum

Jón Örvar fór yfir hvers eðlis tjónið er og hvernig það sker sig frá öðrum jarðskjálftatjónum eins og til dæmis í Suðurlandsskjálftunum árin 2000 og 2008. Hann segir muninn á þessum atburðum vera þann að þá varð umtalsvert minna tjón á mjög mörgum eignum en núna sé mikið tjón á þeim eignum sem lágu næst sprungunum og því sé eðlismunur á tjónunum í þessum tveimur atburðum. Borið saman við Suðurlandsskjálftana þar sem tjón varð á 5.000 eignum eru mun færri eignir skemmdar í Grindavík. Tjónið 2008 nam rúmlega 20 milljörðum á núvirði.

Fjármagnar uppkaup Þórkötlu

Jón Örvar segir sjóðinn ágætlega undir þetta búinn en að þetta sé mikið högg. Sjóðurinn sé endurtryggður fyrir tjóni sem fer yfir 10 milljarða og er með tryggingu allt að 45 milljörðum í einum stórum atburði. Heildarstaða sjóðs Náttúruhamfaratryggingar var 57 milljarðar áður en hamfarirnar hófust. Gert er ráð fyrir að 26 milljarðar fari úr sjóðnum, 15 milljarðar til Þórkötlu samkvæmt lögum um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík, og 11 milljarðar í bótagreiðslur, 10 milljarðar vegna jarðskjálftanna og 1 milljarður vegna eldgossins. Endurtryggingafélagið greiðir svo tjón umfram 10 milljarða.

Náttúruhamfaratrygging er fjármögnuð samhliða lögbundinni brunatryggingu húseigna á Íslandi og tryggingafélögin sjá um innheimtu. Árlegar tekjur Náttúruhamfaratryggingar eru 5 milljarðar og er iðgjaldið 0,025% af brunabótamati fasteignar.

Höf.: Óskar Bergsson