— Morgunblaðið/Árni Sæberg
Laugardalslaug verður lokuð næstu tvær vikur og segir forstöðumaður laugarinnar Drífa Magnúsdóttir að verið sé að halda áfram þeirri vinnu sem hófst í fyrra þegar laugin var lokuð í rúmar þrjár vikur og að nú sé vitað betur hverju gengið er að

Laugardalslaug verður lokuð næstu tvær vikur og segir forstöðumaður laugarinnar Drífa Magnúsdóttir að verið sé að halda áfram þeirri vinnu sem hófst í fyrra þegar laugin var lokuð í rúmar þrjár vikur og að nú sé vitað betur hverju gengið er að.

Laugin verður lokuð til og með 24. september, en meðal annars á að vinna að endurnýjun og viðhaldi á kýraugum sem hófst í fyrra.

Farið var í viðamiklar framkvæmdir í fyrra. Upphafleg tímaáætlun þá gerði ráð fyrir tveggja vikna lokun, en vegna ófyrirséðra viðgerða sem ljóst var að þurfti einnig að ráðast í var tímaramminn framlengdur í rúmlega þrjár vikur. Þá þurfti einnig að loka lauginni í stuttan tíma í vor.