Fyrirliði Guðmundur Kristjánsson fyrirliði Stjörnunnar fer í bann.
Fyrirliði Guðmundur Kristjánsson fyrirliði Stjörnunnar fer í bann. — Morgunblaðið/Eggert
Guðmundur Kristjánsson leikmaður Stjörnunnar hefur verið úrskurðaður í eins leiks bann fyrir að hafa veitt Böðvari Böðvarssyni leikmanni FH kjaftshögg í leik liðanna í Bestu deildinni í knattspyrnu í byrjun mánaðarins

Guðmundur Kristjánsson leikmaður Stjörnunnar hefur verið úrskurðaður í eins leiks bann fyrir að hafa veitt Böðvari Böðvarssyni leikmanni FH kjaftshögg í leik liðanna í Bestu deildinni í knattspyrnu í byrjun mánaðarins. Böðvar hafði skömmu áður veitt Guðmundi olnbogaskot en var ekki veitt refsing fyrir það. Hvorugum leikmanni var refsað meðan á leiknum stóð og ekki minnst á atvikið í skýrslu dómarans Péturs Guðmundssonar eftir hann.