Leiðtogi Osamu Suzuki lést 94 ára að aldri 25. desember síðastliðinn.
Leiðtogi Osamu Suzuki lést 94 ára að aldri 25. desember síðastliðinn. — AFP/Toru Yamanaka
Osamu Suzuki, leiðtogi Suzuki-bílaframleiðandans, lést á dögunum 94 ára að aldri. Samkvæmt frétt The New York Times kvæntist meistari Osamu inn í Suzuki-fjölskylduna og tók eftirnafn konu sinnar. Osamu leiddi fyrirtækið í yfir 40 ár og á þeim tíma…

Osamu Suzuki, leiðtogi Suzuki-bílaframleiðandans, lést á dögunum 94 ára að aldri.

Samkvæmt frétt The New York Times kvæntist meistari Osamu inn í Suzuki-fjölskylduna og tók eftirnafn konu sinnar.

Osamu leiddi fyrirtækið í yfir 40 ár og á þeim tíma breytti hann japanska framleiðandanum í alþjóðlegt fyrirtæki sem leggur einkum áherslu á sölu smærri bifreiða og mótorhjóla. Í dag veltir fyrirtækið meira en 30 milljörðum dala á ári og hefur sérstaklega sterka stöðu á mörkuðum eins og Indlandi, sem stendur fyrir um 40% af sölu félagsins.

Forsætisráðherra Indlands, Narendra Modi, lýsti því yfir þegar hann sendi samúðarkveðjur vegna andlátsins að Osamu hefði verið einn þeirra sem hvað mest áhrif hefðu haft á bílaiðnað Indlands. Það var árið 1981 sem Suzuki stofnaði félag í landinu í samvinnu við indverska ríkið. Á tíma þegar fáir höfðu einhverja trú á landinu fyrir slíkan iðnað.

Sonur Osamu og konu hans er núverandi forstjóri félagsins, Toshihiro Suzuki.