Stefán Gunnar Sveinsson
Undirritaður rambaði á dögunum fram á þáttinn „Are You Smarter Than a Celebrity?“ á Amazon Prime-streymisveitunni, en þar er búið að vekja aftur til lífsins hinn gamalkunna þátt „Ertu skarpari en skólakrakki?“ sem sýndur var í íslenskri útgáfu skömmu fyrir hrun.
Keppendur mæta sem sagt til leiks og eiga að svara tíu spurningum sem fengnar eru beint úr grunnskólanum. Þeim til aðstoðar eru svo fimm misvitrir „frægir“ einstaklingar, sem virðast helst eiga það sameiginlegt að hafa ekki verið valdir fyrir gáfur sínar í þáttinn. Svarið við titilspurningu þáttanna er því mjög líklega já.
Það fyrsta sem vekur athygli er að langfrægasti einstaklingurinn á sviðinu er sjálfur kynnirinn, Travis Kelce, sem er betur þekktur sem ruðningsstjarna og þrefaldur Ofurskálarmeistari með Kansas City Chiefs, og er þá enn ónefnt að hann er kærasti Taylor Swift, frægustu tónlistarkonu heims. „Fræga fólkið“ er nánast eins og sauðsvartur pöpullinn í samanburðinum.
Kelce er merkilega góður þáttastjórnandi, með þægilega nærveru og óhræddur við að draga dár að sjálfum sér. Hitt er þó verra að spurningarnar eru ekki sérstaklega þungar, en samt ná hinir frægu oft að klúðra þeim á einstaklega spaugilegan hátt. Ætli þessi fái svo íslenska útgáfu?