Körfuknattleiksþjálfarinn Finnur Freyr Stefánsson hefur framlengt samning sinn við Val til ársins 2028 en hann hefur þjálfað karlalið félagsins frá 2020. Undir stjórn Finns varð Valur Íslandsmeistari 2022 og aftur á síðasta ári
Körfuknattleiksþjálfarinn Finnur Freyr Stefánsson hefur framlengt samning sinn við Val til ársins 2028 en hann hefur þjálfað karlalið félagsins frá 2020. Undir stjórn Finns varð Valur Íslandsmeistari 2022 og aftur á síðasta ári. Þá varð liðið bikarmeistari árið 2023 og aftur í ár. Hann gerði KR-inga að Íslandsmeisturum árin 2014, 2015, 2016, 2017 og 2018 og bikarmeistara 2016 og 2017 og er því einn sigursælasti körfuboltaþjálfari landsins.