Óskar Bergsson
oskar@mbl.is
„Vegagerðin býr yfir mikilli reynslu af því að leggja vegi yfir nýrunnið hraun, ef svo illa færi að hraun rynni yfir Reykjanesbraut,“ segir Bergþóra Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri þjónustusviðs hjá Vegagerðinni, vegna breytinga á skjálftavirkni sem hefur færst norðar og nær Reykjanesbraut en áður.
Hún segir að það taki alltaf einhverja daga að leggja nýjan veg, sem er gríðarlega langur tími fyrir þessa samgönguæð.
„Við erum viðbúin flestum sviðsmyndum sem mönnum hefur dottið í hug að gætu komið upp.“
Hvað gerið þið ef hraunið ógnar brautinni?
„Vegagerðin hefur skoðað mismunandi leiðir og staðsetningar um hvar og hvenær hraun geti runnið og skoðað hvort hægt sé að setja upp mismunandi varnarmannvirki. Fram að þessu hefur það ekki verið talin líkleg sviðsmynd að hraun renni yfir Reykjanesbrautina en nú hefur orðið breyting á með þessum atburði núna.“
Bergþóra segir að Vegagerðin sé meðvituð um hvar sé hægt að sækja efni í varnargarða, en margt annað en bara hraunflæði geti ógnað Reykjanesbrautinni. „Ef það opnast sprunga nálægt Reykjanesbraut geta öskufall, gas og reykur spillt umferð og það yrði líka mikið sjónarspil, sem gæti hugsanlega truflað umferðina.“
Til hvaða ráða getið þið gripið ef Reykjanesbrautin lokast?
„Hin leiðin á Reykjanesskaga er Suðurstrandarvegur, Krísuvíkurvegur, Nesvegur og Grindavíkurvegur sem varð fyrir skemmdum 1. apríl og við erum að vinna við að laga núna,“ segir Bergþóra Kristinsdóttir. oskar@mbl.is