Blindbylur á Mývatns- og Möðrudalsöræfum, Vopnafjarðarheiði og Háreksstaðahálsi, sem hefur fyrr og síðar komist í fréttirnar, vekur spurningar um hvort tímabært sé að allir þingmenn Norðausturkjördæmis flytji þingsályktunartillögu um að jarðgangagerð milli Vopnafjarðar og Héraðs verði á þessu kjörtímabili sett inn á samgönguáætlun. Stórhríð og hvassviðri sem valda vandræðum og setja vegasamgöngur á Austurlandi úr skorðum eru skýr skilaboð um að ástandið í samgöngumálum fjórðungsins hefur aldrei verið verra, sé litið til baka um fjóra áratugi. Það eyðileggur allar vonir um hlýnandi veðurfar næstu áratugina og tilraunir til að byggja upp örugga og hindrunarlausa heilsársvegi um Háreksstaðaleið upp úr Vopnafirði, á Fagradal, Fjarðarheiði, Öxi, Breiðdalsheiði, Sprengisandi og upp að Oddskarðsgöngunum sem tvíbreið Norðfjarðargöng leystu af hólmi 2017.
Loforðin frá 2007 um hindrunarlausan heilsársveg í 530 m hæð á snjóléttu svæði, yfir Öxi, sem Kristján L. Möller gaf stuðningsmönnum Axarvegar í sinni ráðherratíð, skildi sveitarstjórn Djúpavogs þannig að hún gæti að eigin geðþótta skammtað sér lögregluvald yfir samgöngumálum Breiðdælinga, með kröfunni um lokun Breiðdalsheiðar gegn vilja heimamanna. Slík framkoma gagnvart öðru sveitarfélagi veldur pólitískum hrepparíg sem skaðar samgöngumál fjórðungsins.
Daglega minnka líkurnar á uppbyggðum og hindrunarlausum heilsársvegi um Öxi þegar Vegagerðin þarf að skera niður vetrarþjónustuna með því að takmarka snjómokstur við tvo daga í viku til að hleypa ekki upp kostnaðinum, sem er alltof mikill. Seint á árinu 2008 þurfti að hætta snjómokstri á Vestfjörðum, Norður- og Austurlandi til þess að tapið á vetrarþjónustu Vegagerðarinnar færi ekki yfir milljarð króna. Hluta af þessari upphæð hefði verið betur varið til undirbúningsrannsókna á jarðgangagerð vestan Hellisheiðar eystri.
Í nóvember 2008 lagði Kristján L. Möller, þáverandi samgönguráðherra, til að skoðaðir yrðu möguleikar á jarðgangagerð til Seyðisfjarðar þegar hann lýsti áhyggjum sínum af versnandi ástandi á Fjarðarheiði. Fyrir löngu hefði þessi fyrrverandi yfirmaður samgöngumála átt að kynna sér áhyggjur Vopnfirðinga, sem geta ekki alla vetrarmánuðina treyst á landleiðina til Akureyrar og Egilsstaða upp úr Vopnafirði þegar Vegagerðin kemst ekki hjá því að fækka snjómokstursdögum í hverri viku á Háreksstaðahálsi, Möðrudalsöræfum og víðar til að forðast of mikla veðurhæð.
Auðvitað veldur þessi ákvörðun Vegagerðarinnar Vopnfirðingum miklum vonbrigðum, en þeir hafa í mörg ár þurft að treysta á flugsamgöngurnar við höfuðstað Norðurlands. Versnandi ástand, sem hefur alltof lengi hrellt íbúa Norðausturkjördæmis, réttlætir ekki að Íslandspóstur geti þegar honum hentar svipt Vopnfirðinga póstfluginu án nokkurs tilefnis.
Óþolandi er að sveitarstjórn Fljótsdalshéraðs skuli tefla hugmyndinni um Sprengisandsveg í 800-900 m hæð milli Egilsstaða og Reykjavíkur gegn öllum jarðgöngum sem tryggja öryggi íbúanna á suðurfjörðunum, Mið-Austurlandi, norðan Fagradals og vestan Hellisheiðar eystri enn betur en núverandi fjallvegir. Í þessari hæð yfir sjávarmáli verður uppbyggður vegur um Sprengisand ávísun á enn frekari vandræði sem hafa síðustu vikur og mánuði gert Norðfirðingum, Seyðfirðingum, Vopnfirðingum og fleiri landsmönnum lífið leitt.
Fljótlega myndu vonsviknir Austfirðingar halda að sveitarstjórn Fljótsdalshéraðs væri á villigötum þegar yfirmenn Vegagerðarinnar synja allri beiðni um vetrarþjónustu á Sprengisandsvegi, sem þeir telja óframkvæmanlega og alltof áhættusama í 1000 m hæð. Vel get ég skilið, þótt biðlistar eftir jarðgöngum séu langir, að áhyggjufullir Vopnfirðingar vilji réttláta umfjöllun líkt og aðrir landsmenn, og telji sig líka eiga rétt á veggöngum vestan Hellisheiðar eystri sem tengja þeirra heimabyggð við Egilsstaði og Hérað enn betur en núverandi vegur á Háreksstaðahálsi.
Með útúrsnúningi og hnútuköstum svaraði Vegagerðin öllum hugmyndum um að nýi vegurinn á Jökuldal færi í gegnum stutt jarðgöng undir Skjöldólfsstaðahnjúk. Þess verður ekki langt að bíða að aurskriður sópi honum alla leið niður í Gilsá með skelfilegum afleiðingum.
Ákveðum strax undirbúning jarðgangagerðar vestan Hellisheiðar eystri.
Höfundur er farandverkamaður.