Ólafur E. Jóhannsson
oej@mbl.is
Þrátt fyrir að olíuverð hafi lækkað á heimsmarkaði og bandaríkjadalur veikst hefur það ekki skilað sér nema að litlu leyti út í verðlag á bensíni og dísilolíu hér á landi, en það sem af er þessum mánuði hefur heimsmarkaðsverð á olíu farið, umreiknað í íslenskar krónur, niður um 7-8 krónur á lítrann. Þetta segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, í samtali við Morgunblaðið.
Hann segir þó að virða megi olíufélögunum það til vorkunnar að um miðjan sl. mánuð hafi verðið verið á svipuðum slóðum og nú. Hann nefnir einnig að nýir skattar á eldsneyti hafi tekið gildi um sl. áramót. Þannig hafi kolefnisgjald á hvern bensínlítra hækkað úr 11,70 krónum í 18,60 krónur og á dísilolíu úr 13,45 krónum í 21,40 krónur. Þá hafi bæði bensín- og dísilolíugjöld einnig hækkað og þannig hafi bensínlítrinn hækkað um 12 krónur með virðisaukaskatti um áramót.
„En verðið hér á landi hefur ekki lækkað eins og búast hefði mátt við,“ segir Runólfur og bendir hann á danska markaðinn þar sem verð hefur lækkað um 5-6 krónur á sama tíma og það hefur lækkað um hálfa til eina krónu á lítrann hér á landi.
„Olíufélögin skýla sér á bak við einhverja birgðastöðu eins og alltaf er kyrjað um, en málið er að í svona viðskiptum, þegar vara er seld í miklu magni og hefur verið seld hér áratugum saman, er birgðastaðan afskrifuð eins og í venjulegum rekstri. Það á að miða við heimsmarkaðsverð. Félögin selja olíu til útgerðarinnar á verði sem miðast við heimsmarkaðsverð og auðvitað eigum við neytendur að njóta sömu kjara,“ segir hann og bætir því við að flugfélag sem hafi keypt eldsneyti á röngum tíma geti ekki leyft sér að selja flugfarmiðana á miklu hærra verði fyrir vikið. Þar sé virk samkeppni á markaði.
Runólfur bendir á að líta megi til Danmerkur sem fyrirmyndar í því efni, en þar var gert samkomulag um að fylgja heimsmarkaðsverði í smásölu á bensíni og dísilolíu og verðmyndun þannig gerð gegnsæ. Það hafi gengið eftir síðan.
„Við höfum bent á að í Belgíu er sett verðþak, álagningin má ekki fara upp fyrir ákveðið mark. Þar mega menn bjóða eins lágt verð og þeir vilja en álagningin má ekki fara upp fyrir tiltekið þak. Þótt við séum eitthvað lengra í burtu en önnur Evrópuríki þá gilda sömu lögmál hér,“ segir Runólfur.
Hann nefnir að hagfellt sé fyrir neytendur á suðvesturhorninu að Costco virðist fylgja heimsmarkaðsverði á bensíni og olíu, það sé nær heimsmarkaðsverði í þeim vörutegundum en íslensku olíufélögin og álagning þar sé nær því sem þekkist í nágrannalöndunum.