Einkasýning Auðuns Kvarans, I'd Rather be Somewhere Nice, stendur nú yfir í Gallerí Fyrirbæri á Ægisgötu 7 í Reykjavík.
Segir í tilkynningu að verk hans byggist á rannsókn á hinu hverfula samspili einstaklinga og umhverfis þeirra. „Í stað þess að setja fram fastmótaðar frásagnir skapar Auðunn rými fyrir áhorfendur til að líta inn á við og kanna sitt eigið samband við umhverfi sitt.“ Auðunn, sem fæddist árið 1995, er myndlistarmaður og sýningarstjóri. Hann lauk BA-prófi við Listaháskóla Íslands árið 2020. Frá árinu 2021 hefur hann verið búsettur í Aþenu þar sem hann stofnaði og stýrir nú listamannarekna rýminu Living Room.