Ólafur E. Jóhannsson
oej@mbl.is
Maður á þrítugsaldri var handtekinn á Keflavíkurflugvelli á fimmtudag með kókaín í farangrinum en hann kom hingað til lands með flugi frá Spáni. Þá var maður á 19. aldursári handtekinn sama dag við komu til landsins frá Frakklandi. Var sá með kókaín falið í farangri sínum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum sem birt er á vef lögreglunnar.
Alls eru nú 25 menn frá 15 löndum í gæsluvarðhaldi að kröfu lögreglustjórans á Suðurnesjum. Þeir eiga ríkisfang í Palestínu, Sýrlandi, Spáni, Gíneu, Litáen, Nígeríu, Brasilíu, Spáni, Grikklandi, Alsír, Póllandi, Þýskalandi, Slóvakíu, Frakklandi og Lettlandi og sæta flestir gæsluvarðhaldi vegna innflutnings á ólöglegum fíkniefnum.
Mörg frávísunarmál
Í tilkynningu lögreglustjórans kemur m.a. fram að það sem af er þessu ári eru frávísunarmál á landamærum Íslands á Keflavíkurflugvelli orðin 127 talsins. Frá árinu 2010 hefur fjöldi slíkra mála á ársgrundvelli verið meiri í einungis þrjú skipti. Segir lögreglan að gera megi ráð fyrir að það dragi aðeins úr fjölda þessara mála á þessu ári með hliðsjón af öflugum aðgerðum lögreglu og tollgæslu á Keflavíkurflugvelli undanfarin misseri.
Frávísanir á landamærum snúa ekki að þeim sem handteknir eru á flugvellinum við að reyna að koma ólöglegum fíkniefnum inn í landið. Þeir eru handteknir og úrskurðaðir í gæsluvarðhald og dæmdir til fangelsisvistar í framhaldinu.
Umfjöllun vekur menn til umhugsunar
Lögreglustjóri segir að jákvæð umfjöllun fjölmiðla hjálpi til og veki menn til umhugsunar um störf lögreglu og tollgæslu á Keflavíkurflugvelli. Á flugvellinum sé reynt að hafa hendur í hári þeirra sem hingað eru komnir til að brjóta af sér, selja og dreifa fíkniefnum eða brjóta lög með öðrum hætti. Er þar svört atvinnustarfsemi ekki sögð undanskilin. Álag vegna þessa á starfsemi lögreglunnar á Suðurnesjum segir hann mikið.
Lögreglustjórinn nefnir að í rösklega ársgömlu minnisblaði sem sent var dómsmálaráðuneytinu hafi þeirri tillögu verið komið á framfæri við ráðuneytið að ráðnir verði til embættisins fangaverðir til að annast fangavörslu í fangahúsi, yfirsetu yfir sakborningum sem flytja inn fíkniefni innvortis og flutning sakborninga til og frá dómi. Lögreglumenn sinni nú þessum verkefnum. Segir hann vert að geta þess að það geti tekið daga, og vikur í undantekningartilfellum, að skila af sér fíkniefnum úr meltingarvegi á meðan sakborningur er vistaður í fangaklefa á lögreglustöðinni í Reykjanesbæ. Segist lögreglustjórinn þurfa að geta nýtt lögreglumenn í löggæsluverkefni en ekki í fangavörslu og fangaflutninga. Lausn þessa máls sé ekki í sjónmáli.
Keflavíkurflugvöllur
Frávísanir orðnar 127 það sem af er þessu ári
Gæsluvarðhaldsfangar að kröfu lögreglustjórans á Suðurnesjum eru nú 25 talsins
Með ríkisfang í 15 löndum
Lögreglustjóri vill að ráðnir veri fangaverðir til gæslu
Lögreglumenn sinna fangavörslu nú
Lausn ekki í sjónmáli