Bókasafn Bækur Birgittu Haukdal njóta mikilla vinsælda hjá börnum.
Bókasafn Bækur Birgittu Haukdal njóta mikilla vinsælda hjá börnum. — Morgunblaðið/Karítas
Birgitta Haukdal er vinsælasti rithöfundur landsins ef litið er til útlána á bókasöfnum. Bækur hennar voru lánaðar út um 34 þúsund sinnum á síðasta ári. Samkvæmt talnagreiningu sem Landskerfi bókasafna vann að beiðni Morgunblaðsins er Yrsa Þöll…

Birgitta Haukdal er vinsælasti rithöfundur landsins ef litið er til útlána á bókasöfnum. Bækur hennar voru lánaðar út um 34 þúsund sinnum á síðasta ári. Samkvæmt talnagreiningu sem Landskerfi bókasafna vann að beiðni Morgunblaðsins er Yrsa Þöll Gylfadóttir næstvinælasti höfundurinn en Ævar Þór Benediktsson er í þriðja sæti. Ragnar Jónasson er vinsælasti skáldsagnahöfundurinn og slær Arnaldi Indriðasyni við.

Ef horft er til einstakra skáldsagna trónir Heim fyrir myrkur eftir Evu Björgu Ægisdóttur á toppnum með 2.132 útlán. » 14