Friðrik Ólafsson fæddist 26. janúar 1935 í Reykjavík. Hann lést á líknardeild Landspítalans 4. apríl 2025.

Foreldrar hans voru Ólafur Friðriksson, f. 1905, og Sigríður Ágústa Dóróthea Símonardóttir. Systkini Friðriks eru Margrét, f. 1930, og Ásta, f. 1932.

Eiginkona Friðriks er Auður Júlíusdóttir, f. 1941. Dætur þeirra eru tvær: 1. Bergljót Friðriksdóttir, f. 1962, maki Friðrik Halldórsson. 2. Áslaug Friðriksdóttir, f. 1969. Barnabörnin eru fimm: Auður Friðriksdóttir, f. 1984, Esther Friðriksdóttir, f. 1994, Íris Friðriksdóttir, f. 1997, Brynja Björt Óskarsdóttir, f. 1998, og Friðrik Snær Óskarsson, f. 2001. Barnabarnabörn eru Ugla, Yrsa, Ylfa Sigríður, Iðunn og Bergur.
Friðrik lauk stúdentsprófi frá MR 1955 og lögfræðiprófi frá HÍ árið 1968. Hann var fulltrúi í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu frá 1968-1974, forseti Alþjóðaskáksambandsins 1978-1982, ritstjóri Lagasafns Íslands 1982-1983 og skrifstofustjóri Alþingis 1984-2005.

Friðrik átti stórbrotinn skákferil að baki og varð sex sinnum Íslandsmeistari í skák, fyrst árið 1952. Hann varð Norðurlandameistari 1953 og 1971, alþjóðlegur skákmeistari 1956 og fyrsti íslenski stórmeistarinn í skák árið 1958. Hann varð sigurvegari á skákmótinu í Hastings 1955 og 1956, í Beverwijk í Hollandi 1959, í Marianske Kasne í Tékkóslóvakíu 1961, á alþjóðlegum skákmótum í Reykjavík 1966, 1972 og 1976 og á Wijk an Zee í Hollandi 1975. Friðrik veitti forstöðu Skákskóla Friðriks Ólafssonar 1982-1984.

Friðrik var sæmdur riddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu 1972 og stórriddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu 1980. Árið 2015 var hann útnefndur heiðursborgari Reykjavíkur og gerður aðalheiðursfélagi Alþjóðaskáksambandsins. Friðrik gaf út þrjár bækur um skák.

Útför Friðriks fer fram frá Hallgrímskirkju í dag,  14. apríl 2025, klukkan 11. Útförinni verður streymt og má nálgast vefslóðina á mbl.is/andlat

Margir eru kallaðir en fáir útvaldir

Á áratugnum milli 1950 og 1960 varð Friðrik Ólafsson þjóðhetja. Þegar ég horfi aftur til þessara ára virðist mér staða Friðriks ekki ólík því sem staða Bjarkar varð síðar. Afrek Friðriks við skákborðið voru á heimsmælikvarða þrátt fyrir einangrun og erfiðar aðstæður. Árangur hans vakti athygli ekki síður erlendis en hér heima. Margir þættir spunnust saman við að auka þessi áhrif, glæsilegir sigrar, drengileg og hógvær framkoma, myndarlegur og glaðlegur ungur maður með ákveðið aðalsyfirbragð. Sigrar hans vöktu bergmál í hugum yngri kynslóðarinnar og segja má að yngri meistarar okkar standi á herðum hans.
Þegar rætt er um áhrif Friðriks Ólafssonar á íslenskt skáklíf koma margir þættir í hugann. Í fyrsta lagi skákfræðileg áhrif Friðriks, stíll hans, byrjanaval, tækni, rannsóknaraðferðir og skrif hafa haft áhrif á skákstyrk Íslendinga. Í öðru lagi áhrif hans í þá átt að efla áhuga á skák í landinu, jafnvel áhrif hans á þá sem ekki eru gjörkunnugir leikreglum manntaflsins. Í þriðja lagi áhrif hans á skákhreyfinguna sem slíka, þ.e. félagsmál skákmanna, mótahald og félagslíf. Í fjórða lagi áhrif Friðriks á sjálfsmynd Íslendinga sem ég tel að hafi verið veruleg svo skömmu eftir stofnun lýðveldisins og síðast en ekki síst kynning hans á landi og þjóð og frægð hans erlendis. Enginn vafi er að áhrif Friðriks eru mikil á öllum þessum sviðum.
Óður til skáklistarinnar
Umræða um Friðrik Ólafsson verður óhjákvæmilega öðrum þræði óður til skáklistarinnar. Til þess að ná langt í skák þarf fjölþætta hæfileika. Það þarf einbeitni, öflugt hugarflug og hugsmíðaafl, mikinn viljastyrk og ögun, skynjunarkraft, sterka rúmskynjun sem gerir kleift að skynja og tengja mennina á borðinu, gríðarlega greiningar- og talningarhæfileika svo nokkuð sé nefnt.
Íslenskt mál á sér orð sem lýsa sérstökum hæfileikum s.s. smiðsauga, læknishendur, tóneyra, Ekkert slíkt orð þekki ég sem lýsir snillingum skáklistarinnar. Næmleika tónsnillingsins fyrir tónum, málarans fyrir litum og línum er við brugðið. Snilli skákmeistarans er samofin úr mörgum eiginleikum hugarflugs og rökhyggju, Skákin á sér kröfu sem er sameiginleg öðrum listum, krafan um sköpunargáfuna, samræmi, einbeitingu, ástríðu, frumleika og viljastyrk.
Ríki skáklistarinnar er þar í ríki andans sem saman koma landamæri vísinda, lista og keppnisíþrótta. Þó skákin sé bundin sterkum leikreglum eru þau listaverk sem verða til við þetta sextíu og fjögurra reita borð Fyrst og fremst byggð á hugarflugi og listhæfni. Snillingur við skákborðið þarf að eiga eiginleikann til að gera hverja hugsun að neista, kynda bál í huganum, varðveita þennan demantsharða loga sem stöðugt lýsir allt upp með athugun, undrun og aðdáun.

Þar eru sjálfsagt skýrustu einkennin sókndirfska og leiftrandi fléttur og ekki má gleyma tímahrakinu sem einkenndi skákstíl Friðriks. Margir sögðu að Friðrik hefði verið súperstórmeistari í tímahraki. Þessi umsögn verður enn merkilegri þegar haft er í huga að margar skákir Friðriks enduðu í ævintýralegu tímahraki og hinu að nær allir sterkustu skákmeistarar heims hafa gert sig seka um fingurbrjóta. Tímahrak Friðriks vakti oft upp gríðarlega spennu í hópi áhorfenda og það svo að helst verður jafnað til áhrifa magnþrunginna spennumynda nú á dögum.
Friðrik var fæddur 26. Jan. 1935. Lærði að tefla 8 ára líklega af því að fylgjast með föður sínum tefla sem minnir á fyrstu kynni sumra sterkustu meistara sögunnar af skákinni t.d. Capablanca. Hér eru engin tök á að rekja langan frægðarferil Friðriks við skákborðið. Ég vil þó fara hér með dálítið brot til þess að minna á hversu glæsilegur ferillinn er.
Friðrik varð Íslandsmeistari 1952, 17 ára gamall, Skákmeistari Norðurlanda tvisvar í fyrra skiptið 1953 og þá sá yngsti sem því marki hafði náð. Einvígið við Larsen 1956 um Norðurlandameistaratitilinn er minnisstætt. Þessir tveir áttu eftir að verða öflugustu skákmeistarar Norðurlanda.

Einvígi Friðriks og Larsens vakti slíka athygli hér að dæmi voru ekki um slíkt áður. Áhorfendasalur fylltist, fólk stóð utan dyra, Jafnvel lá á gluggum til þess að reyna að fylgjast með, útvarp og blöð voru undirlögð af þessum atburði. Hér á landi höfum við varla nokkurn atburð sem stenst samanburð varðandi almennan áhuga nema ef vera kynni heimsmeistaraeinvígið 1972. Skömmu fyrir einvígið við Larsen háði Friðrik einvígi, reyndar tvö, við argentínska stórmeistarann Pilnik. Friðrik sigraði með yfirburðum og líkaði Pilnik miður.
Eitt kunnasta afrek Friðriks er þegar hann náði efsta sæti í Hastings ásamt Kortsnoj 1955-56. Atlögur gerði Friðrik nokkrar að heimsmeistaratitlinum. Of langt mál er að telja hér upp öll mót Friðriks. Geta verður þó þess að hann vann sér rétt til að tefla á kandidatamóti í Júgóslavíu 1959 þar sem hann hafnaði í 7. Sæti. Þar var tekist á um réttinn til að tefla við Botvinnik um heimsmeistaratitilinn.

Friðrik var útnefndur stórmeistari í skák 1958, fyrsti Íslendingurinn sem náði þeim titli. Þá fór mikil hrifningaralda um íslenskt þjóðfélag. Það var engu líkara en Íslendingum fyndist að þeir væru allir orðnir stórmeistarar. Síðan komu fjölmörg mót.
Friðrik tefldi á 8 Ólympíumótum fyrir Ísland, öll skiptin nema eitt á fyrsta borði og í Búlgaríu 1962 náði hann besta árangri á 1. borði ásamt Najdorf, hlaut 14v af 18v mögulegum. Hann tefldi á þrem heimsmeistaramótum stúdenta, Í Uppsölum hlaut hann 9 v af 10v mögulegum. Íslandsmeistari sex sinnum, 1952, 53, 57, 61, 62 og 69.
Hraðskákmeistari Íslands 7 sinnum. Skákmeistari Reykjavíkur þrisvar. Skákmeistari TR. Skákmeistari Norðurlanda tvisvar 1953 og 1971, hann tefldi á 10 alþjóðlegum Reykjavíkurmótum, þar af efstur þrisvar. Auk þess fjölmörgum alþjóðlegum skákmótum og sigraði í mörgum.
Friðrik hefur ritað bækur um skák; Lærið að tefla ásamt Ingvari Ásmundssyni, Heimsmeistaraeinvígið 1972 með Freysteini Jóhannssyni.
Haft er eftir Robert Fischer að skýringar Friðriks við skákirnar frá einvíginu 1972 séu þær bestu sem gerðar hafa verið. Hann sýndi fram á að þegar Fischer gaf fyrstu skák einvígisins 1972, eftir að hafa drepið eitraða peðið var unnt að ná jafntefli. Við skákborðið í aldarfjórðung er bók um bestu skákir Friðriks.
Fjölmargar greinar hefur hann ritað í dagblöð og tímarit, komið fram í sjónvarpi og útvarpi við skákskýringar. Skáksamband Íslands hélt Friðriki sérstakt afmælismót á 60 ára afmæli hans í þjóðarbókhlöðunni. Þar fór þá fram jafnhliða sýning á ýmsum þáttum frá skákferli Friðriks, myndir, greinar og bækur. Gaman er að rifja upp að Friðrik hefur á sínum ferli unnið flesta frægustu skákmeistara heims. Ég nefni:
Heimsmeistarana Tal, Petrosjan, Fischer, Karpov. Athyglisvert er að Friðrik var forseti FIDE þegar hann vann Karpov. Líklega eina dæmið úr skáksögunni um að sitjandi forseti FIDE; bundinn félagsstörfum, vinni sitjandi heimsmeistarann í kappskák. Ég nefni sigra yfir stórmeisturunum Keres, Kortsnoj, Geller, Stein, Tajmanov, Gligoric, Larsen, Reshevsky, Najdorf, Pilnik, Panno, Benkö, Robert Byrne, Uhlmann, Unzicker, Szabo, Portisch, Hort, Hubner, Anderson, Timman, Seirawan og Browne.
Þessi upptalning sýnir svart á hvítu stöðu Friðriks Ólafssonar í skákheiminum. Jóhann Þórir ritstjóri og útgefandi tímaritsins SKÁK reiknaði út að ef lagðir væru saman allir sigrar allra íslenskra stórmeistara í alþjóðlegum skákmótum, væru þeir færri en sigrar Friðriks eins.
Friðrik lagði skákina að mestu á hilluna um tíma og nam lögfræði við Háskóla Íslands. Ekki verður fram hjá því horft að þar fórnaði Friðrik mörgum frjóum árum frá skákinni og freistandi er að velta fyrir sér hvað hefði getað gerst ef hann hefði helgað sig skákinni að fullu. Til þess voru hins vegar ekki aðstæður. Til þess að helga sig skákinni hefði Friðrik einfaldlega orðið að leggja sjálfan sig undir. Hugsunarhátturinn í þjóðfélaginu var annar þá, menn urðu að sjá fyrir sér, afla sér menntunar til þess að mæta framtíðinni. Ekki skipti máli þó fórnað væri snilligáfu. Á árunum frá 35 ára til 42 ára fékkst skáksnillingurinn við að læra þurrar lagagreinar utanað. Sjá fyrir fjölskyldu. Nú koma orð Larsens aftur í hugann. Íslendingar áttu á þessum tíma marga góða lögfræðinga en aðeins einn stórmeistara í skák. Mér finnst þegar ég hugsa til þessa sem tjóðurhæll skyldunnar, dýflissumúrar vanans, hömlur þjóðfélagsins hafi verið sem óvinnandi vígi.

Til þess voru hins vegar ekki aðstæður. Til þess að helga sig skákinni hefði Friðrik einfaldlega orðið að leggja sjálfan sig undir. Hugsunarhátturinn í þjóðfélaginu var annar þá, menn urðu að sjá fyrir sér, afla sér menntunar til þess að mæta framtíðinni.
Íslendingurinn Friðrik Ólafsson var kosinn forseti alþjóðaskáksambandsins FIDE og Ísland varð þannig áhrifaland í skáklífi heimsins. Friðrik var kjörinn 4. Forseti FIDE. Viðbrögð skákheimsins við kjöri Friðriks voru almenn ánægja. Fyrst og fremst var kjörið viðurkenning á einstaklingnum Friðriki Ólafssyni og lýsti trausti á honum og sýndi vinsældir hans. Í annan stað var kjörið viðurkenning á skákhefð Íslendinga. Ísland var orðið þungamiðja í skáklífi heimsins. Með kjöri Friðriks má segja að nýr kafli hefjist í sögu FIDE. Að ýmsu leyti varð nú meiri festa í starfsemi FIDE. Friðrik var farsæll. Skipulagsmál og þinghald færðist allt til hins betra.
Deilur risu hins vegar vegna fjölskyldumála Kortsnojs sem tengdust síðan framkvæmd heimsmeistaraeinvígi Kortsnojs og Karpovs í Merano á Ítalíu. Til að Sovétmenn gætu leyst það mál ákvað Friðrik að fresta einvíginu um heilan mánuð. Niðurstaðan varð sú að eftir heilmikið stapp, mótmæli, lofuðu Sovétmenn að leyfa fjölskyldu Kortsnoj að yfirgefa Sovétríkin vorið 1982. Sú ákvörðun Friðriks að fresta einvíginu kostaði hann ófá atkvæði á næsti þingi FIDE Þetta fullyrti Baturinskij í bók sinni um einvígi Karpov og Kortsnoj í Merano. Í forsetatíð Friðriks Ólafssonar var FIDE virt alþjóðasamband. Forsetastarf hans var bæði honum og íslensku þjóðinni til sóma
Árangur Friðriks við skákborðið varð aflvaki skáklífs á Íslandi. Enginn vafi er að skákferill Friðriks varð til þess að Ísland kom yfir höfuð til greina við ákvörðun um að halda heimsmeistaraeinvígið í skák hér 1972. Um það mætti halda annan fyrirlestur en hér er ekki tími né aðstæður til þess. Áhrifin á skákhreyfinguna voru mikil og skákmótahald jókst sem og áhugi erlendra skákmeistara á Íslandi. Á Íslandi tóku menn að halda skákmót sem vöktu athygli um allan heim. Sagan sýnir okkur að tiltölulega stutt tímabil í sögu þjóða geta haft áhrif sem leiftra langt fram á ógengnar slóðir. Þannig geta einstök afmörkuð atvik eða líf og afrek einstaklinga eflt með þjóðum sjálfstraust og styrkt trú þeirra á tilverurétt sinn á erfiðum tímum.

Íslendingar voru og eru örþjóð á eyju í miðju Atlantshafi fjarri öðrum löndum. Bjuggu á afskekktum býlum á afskekktri eyju. Staða þeirra og styrkur byggðist einkum á fornri menningu, handritum, sögum og kvæðum ásamt með íslenskri tungu sem nær engir skilja nema þeir sjálfir. En Íslendingar hafa eignast einstaklinga sem vakið hafa athygli með hæfni sinni og snilli um víðan heim, einstaklinga sem með starfi sínu og afrekum hafa vísað veginn og orðið fyrirmynd í amstri þessarar smáþjóðar í hafi þjóðanna. Friðrik Ólafsson er einn þeirra. Áhrif Friðriks Ólafssonar og ímynd hans í íslensku þjóðlífi verða ekki metin eingöngu út frá þröngu mati á afrekum hans við skákborðið. Það verður líka að líta á þau út frá stöðu hans meðal fámennrar einangraðrar þjóðar, einstaklings sem stígur fram meðal þeirra allra fremstu í heiminum á sínu sviði, sem goðum líkur. .Íslendingum fannst þeir allir eiga þátt í afrekum hans. Hann var strákurinn okkar. Þjóðarvitund Íslendinga mótaðist.
Það er alkunna að afrek og árangur verða ekki einvörðungu metin eftir mælikvörðum metrakerfisins. Aðstæður og erfiðleikar vega þungt þegar snilli og afrek eru metin. Smíðar Robinsons Krúsó á eyðieyjunni voru ekki nýjar merkilegar uppgötvanir en vekja undrun og aðdáun lesenda þegar horft er með berum augum á þær fjallháu hindranir sem við var að etja. Nú er það svo að Friðrik og afrek hans við skákborðið þurfa ekki þessara skýringa eða afsakana við. Þau hefðu verið meðal þess besta í skákheiminum þó allar aðstæður hefðu verið sem ákjósanlegastar.
Afrek hans verða enn glæsilegri þegar þetta er haft í huga. Hér voru aðrar aðstæður en nú á tölvuöld þegar upplýsingar berast með ljóshraða milli landa. Aðstæður Friðriks til þess að fylgjast með þróun og nýjungum skáklistarinnar í heiminum voru erfiðar.
Úti í heimi vöktu afrek Friðriks framan af ekki síst athygli vegna þeirra aðstæðna sem hann bjó við. Hugsið ykkur þegar stóra sýningarborðið var sett upp á torgi í Belgrad til þess að sýna hvernig piltur frá lítilli fjarlægri eyju var að yfirbuga Petrosjan, skákmeistarann ósigrandi. Skákþjóðin Júgoslavar gerðu sér grein fyrir því hvað var að gerast. Þeir vissu og skildu hvað til þurfti. Atvinnumenn stórþjóðanna stóðu undrandi. Íslendingur sem vegna fjárskorts, sætti lagi að komast til Bretlands með togara sem sigldi með fisk, sigraði á stórmótum heimskunna atvinnumenn.

Hér heima fannst okkur við eiga Friðrik hann var einn af okkur, hann vakti athygli og aðdáun á landi okkar. Ólíklegustu menn fengu áhuga á skák. Ferill hans og afrek vöktu skákahuga á Íslandi umfram allt sem Íslendingar höfðu áður þekkt. Unga kynslóðin og raunar þjóðin öll hreifst með. Minnisstæðustu augnablikin eru þegar hann, á broti úr sekúndu, töfraði hann fram í ævintýralegu tímahraki listaverk þannig að frægustu skákmeistarar sátu ráðþrota og ringlaðir yfir rjúkandi rústunum.Hvernig var hægt að seiða fram slík listaverk úr engum stöðuyfirburðum með ljóshraða? Okkur meðalmennina sundlar. Við tilhugsunina koma helst í hugann hugtök eins og ferhyrndur hringur og n-vítt rúm.

Ég held að það sé sama hversu marga og sterka skákmeistara Íslendingar eignast, Friðrik verður alltaf Friðrik. Yfir nafni hans og ferli verður alltaf einhver ævintýrablær. Ekki ólíkt og með Fischer þó þessir menn geti varla verið ólíkari. Jóhann Þórir varð alltaf reiður ef hallað var orði á tvo menn. Annar var Friðrik, hinn var Elvis Presley.
Þjóðverjar eiga sér hugtakið die Vergaanglichkeit. Sagt er að allt sé í heiminum hverfult. Skáldið sagði:

Bókfellið velkist, stafirnir fyrnast og fúna, fellur í gleymsku það orð sem er lifandi núna

Steinn Steinar orti á sínum tíma undir áhrifum frá öðru skáldi, Þegar ekið var framhjá núverandi grasflötum þar sem síðasti ósigur Napóleons var við Waterloo.

Ég er gras og ég græ yfir sporin þín, byggið hallir og musteri úr gulli , leggið götur og stræti úr gulum og rauðum sandsteini. Ég er gras og ég græ yfir sporin ykkar.

En sums staðar vex ekki gras.


Goðsögnin lifir. Hún mun lifa svo lengi sem Íslendingar hirða um að muna sögu sína. Meira að segja Guð getur ekki breytt því sem liðið er. Langt fram á ógengna vegi mun slá birtu og glampa af lífi og starfi Friðriks Ólafssonar.

Guðmundur Þórarinsson.