Stórmeistari Vignir Vatnar vann sína fyrstu skák gegn Carlsen.
Stórmeistari Vignir Vatnar vann sína fyrstu skák gegn Carlsen.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Vignir Vatnar Stefánsson, stórmeistari í skák, gerði sér lítið fyrir í fyrrakvöld og vann ríkjandi heimsmeistara, Magnus Carlson, á sterku netskákmóti, Title Tuesday. Carlsen er fimmfaldur heimsmeistari en þetta var í fyrsta sinn sem Vignir tefldi gegn Norðmanninum sterka

Vignir Vatnar Stefánsson, stórmeistari í skák, gerði sér lítið fyrir í fyrrakvöld og vann ríkjandi heimsmeistara, Magnus Carlson, á sterku netskákmóti, Title Tuesday. Carlsen er fimmfaldur heimsmeistari en þetta var í fyrsta sinn sem Vignir tefldi gegn Norðmanninum sterka.

Margir af sterkustu skákmönnum heims taka þátt í þessu móti, Title Tuesday, sem haldið er á hverju þriðjudagskvöldi á netinu. Keppt er um vegleg peningaverðlaun og mun Carlsen hafa tekið þar þátt nokkuð reglulega. Fjölmargir skákáhugamenn fylgdust með viðureign Vignis og Carlsens í streymi sem sá fyrrnefndi stóð fyrir. Árangur Vignis er ekki síður áhugaverður í ljósi þess að þar á undan hafði Carlsen unnið 20 skákir í röð á tveimur mótum.

Gunnar Björnsson, forseti Skáksambands Íslands, segir sigur Vignis merkilegan. Íslenskum skákmanni hafi ekki tekist að sigra ríkjandi heimsmeistara síðan Friðrik Ólafsson vann Anatoly Karpov árið 1980 en Friðrik var þá forseti FIDE, Alþjóðaskáksambandsins.

Eftir að Carlsen varð heimsmeistari hefur íslenskur skákmaður ekki unnið hann á skákmóti. Á yngri árum Carlsens lögðu nokkrir hérlendir skákmenn drenginn að velli, m.a. Hannes Hlífar Stefánsson og Ingvar Þór Jóhannesson. Þá gerði Þröstur Þórhallsson jafntefli við Carlsen, sem voru fyrstu stig Norðmannsins unga gegn stórmeistara.