Einar Bárðarson
Um það bil 8.000 manns tilheyra samfélaginu Plokk á Íslandi á Facebook og þessi hópur er kominn á fullt í að plokka í sínu umhverfi. Flestir sem tilheyra Plokk-síðunni plokka nánast árið um kring en Plokk á Íslandi skipuleggur Stóra plokkdaginn einu sinni á ári. Hann er hugsaður sem upphaf plokktímabilsins, vitundarvakning og hvatning. Tímasetningin hentar vel því þá er vorið komið, snjór horfinn úr byggð og plast og pappírsrusl bíður eftir því að verða bjargað og sent á viðeigandi stofnun.
Stóri plokkdagurinn byrjaði sem grasrótarverkefni en hefur nú fengið Rótarýhreyfinguna á Íslandi með sér í lið. Þá hafa Landsvirkjun og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið gert langtímasamning við verkfenið í umsjá Rótarý til utanumhalds og kynningar á deginum. Rótarýklúbbarnir um allt land munu skipuleggja viðburði á Stóra plokkdeginum og hundruð sjálfboðaliða úr þeirra röðum munu þannig koma að verkefninu.
Rótarýhreyfingin á Íslandi hvetur fyrirtæki, stofnanir, félagasamtök og einstaklinga að láta plokkið sig varða, taka þátt og hvetja aðra til þátttöku.
Allir mega stofna viðburði á Stóra plokkdaginn á samfélagsmiðlum, tengja þá við Plokk á Íslandi, fá merkingar frá Plokk á Íslandi. Hægt er að nálgast merki plokkdagsins á plokk.is og er öllum heimilt að nota það sér að kostnaðarlausu. Sveitarfélög landsins auglýsa sína viðburði og hvernig hægt er að bera sig að með frágang, flokkun eða urðun á hverjum stað fyrir sig.
Á Facebook-svæðinu Plokk á Íslandi má gjarnan deila sigrum okkar á ruslinu með jákvæðum fréttum af árangri baráttunnar árið um kring. Vertu með á Stóra plokkdeginum nú á sunnudag, 27. apríl.
Höfundur er félagi í Rótarýhreyfingunni og plokkari.