Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir að athugun á því að senda erlenda fanga til síns heima til afplánunar sé á byrjunarstigi, en líkt og Morgunblaðið greindi frá í gær vill ráðherra „nýta til fulls“ lagaheimildir og samninga til slíks.
„Ég hef aðallega verið að skoða hvaða heimildir Evrópuráðssamningurinn á þessu sviði veitir og hvort forverar mínir hafi mögulega verið að vannýta einhver tækifæri sem í honum felast,“ segir Þorbjörg, en máli skipti frá hvaða löndum fangar komi.
„Við erum að stíga fyrstu skrefin til þess að létta á íslenskum fangelsum, en það mun ekki skorta á pólitískan vilja minn í þeim efnum þegar fyrir liggur hvað unnt er að gera.“ andres@mbl.is