Smásöluverð á raforku til almennings og fyrirtækja hækkar líklega um áramót. Þetta má lesa í þróun á heildsölumarkaði með grunnorku en meðalverð grunnorkusamninga fyrir næsta ár hefur hækkað um 9% frá fyrra ári

Smásöluverð á raforku til almennings og fyrirtækja hækkar líklega um áramót. Þetta má lesa í þróun á heildsölumarkaði með grunnorku en meðalverð grunnorkusamninga fyrir næsta ár hefur hækkað um 9% frá fyrra ári. Stendur það nú í tæplega 8,3 kr./kWst. Enn eru tæpir átta mánuðir til áramóta og getur því margt gerst á því tímabili sem hefur áhrif á verðmyndun. Til að mynda hefur vatnsstaða í miðlunarlónum Landsvirkjunar áhrif og svokölluð aflþjónusta Landsvirkjunar. Þá eru eldri ódýrari raforkusamningar að renna út, sem áður höfðu haldið heildarkostnaði smásala niðri.

„Með opnun raforkumarkaða á síðasta ári hefur gegnsæi viðskipta stóraukist, bæði hvað varðar raforkuverð og framboðs- og eftirspurnarmagn af raforku. Þetta aukna gegnsæi mun án efa setja umræðuna um raforku á hærra plan á Íslandi,“ segir Hjálmar Helgi Rögnvaldsson, forstöðumaður viðskiptaþróunar orkumiðlunar hjá ON. » 24