Salmonella Ekkert er að óttast ef kjötið er meðhöndlað rétt.
Salmonella Ekkert er að óttast ef kjötið er meðhöndlað rétt. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
Til skoðunar er hvort salmonellusmit sé komið upp í ferskum kjúklingi framleiddum af Matfugli ehf. Í tilkynningu til fjölmiðla segir að frekari rannsókna sé þörf til þess að staðfesta gruninn. Þangað til hefur fyrirtækið ákveðið að innkalla vöruna

Til skoðunar er hvort salmonellusmit sé komið upp í ferskum kjúklingi framleiddum af Matfugli ehf. Í tilkynningu til fjölmiðla segir að frekari rannsókna sé þörf til þess að staðfesta gruninn. Þangað til hefur fyrirtækið ákveðið að innkalla vöruna.

Kjúklingurinn sem um ræðir er með rekjanleikanúmerinu 011-25-13-3-68 og eru pökkunardagarnir 28.04.2025 til 30.04.2025.

„Dreifing á afurðum hefur verið stöðvuð og í samræmi við innra eftirlit fyrirtækisins er unnið að innköllun vörunnar. Neytendur sem keypt hafa kjúkling með þessu rekjanleikanúmeri eru beðnir um að skila honum í viðkomandi verslun eða beint til Matfugls ehf., Völuteigi 2, Mosfellsbæ,“ segir m.a. í tilkynningunni.

Þar segir einnig að til að varast óróleika hjá neytendum skuli það tekið fram að þessi kjúklingur sé hættulaus sé hann meðhöndlaður rétt.

Yfir tvö þúsund afbrigði af salmonellubakteríum eru til. Algengastar hér á landi eru S. Enteritidis og S. Typhimurium en helstu smitleiðir eru með menguðum matvælum. Smit á milli manna er ekki algengt.

Smitist fólk af salmonellubakteríunni eru helstu einkenni niðurgangur, ógleði, uppköst, kviðverkir og hiti. Yfirleitt líða 1-3 dagar frá því að fólk smitast og þar til einkenni koma upp. hmr@mbl.is