Strandveiðar Floti strandveiðibáta heldur til veiða nú í morgunsárið.
Strandveiðar Floti strandveiðibáta heldur til veiða nú í morgunsárið. — Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Alls hafði 775 smábátum verið úthlutað strandveiðileyfi um miðjan dag í gær, en þá voru enn óafgreiddar umsóknir frá nálega 100 bátum til viðbótar. Ljóst er þó að ekki munu allir þeir bátar uppfylla sett skilyrði til þess að fá úthlutað veiðileyfi,…

Ólafur E. Jóhannsson

oej@mbl.is

Alls hafði 775 smábátum verið úthlutað strandveiðileyfi um miðjan dag í gær, en þá voru enn óafgreiddar umsóknir frá nálega 100 bátum til viðbótar.

Ljóst er þó að ekki munu allir þeir bátar uppfylla sett skilyrði til þess að fá úthlutað veiðileyfi, eftir því sem Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær.

„Þetta er stór dagur, mikil hátíð og tímamótadagur í sögu Landssambands smábátaeigenda þar sem aldrei hafa fleiri bátar fengið leyfi til strandveiða og 48 dagar eru tryggðir til veiðanna í sumar. Strandveiðimenn brosa nú allan hringinn og það er mikill hugur í trillukörlum,“ segir Örn.

Floti smábáta leggur frá landi í býtið í dag til að freista þess að ná þeim 774 kílóa dagskammti af þorski sem heimilt er að veiða fjóra daga vikunnar. Ætlun stjórnvalda er að heimila strandveiðar í fjóra mánuði í sumar; í maí, júní, júlí og ágúst, en ekki er ljóst hvernig mæta á þeim viðbótarafla sem nást mun á land að óbreyttu. Í fyrra var heimilað að veiða 10.000 tonn af þorski, en síðan var 2.000 tonnum bætt við. Dugði það flotanum einungis til 16. júlí. Miðað við stöðu mála í gær höfðu 342 bátar á Vesturlandi fengið veiðileyfi, 146 bátar á svæðinu frá Ströndum og austur í Eyjafjörð. Veiðileyfi fyrir Norður- og Norðausturland voru 91 og frá Suðurlandi til Borgarfjarðar voru þau 196 talsins. Í fyrra var alls 756 strandveiðileyfum úthlutað, þannig að ætla má að þau verði nokkru fleiri í ár.

Höf.: Ólafur E. Jóhannsson