Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels heitir hefndum gegn uppreisnarhópi Húta í Jemen eftir flugskeytaárás þeirra á Ben Gurion-alþjóðaflugvöllinn í Tel Avív.
Flugskeytinu var skotið frá Jemen og lenti nálægt aðalbyggingu Ben Gurion í gærmorgun, að sögn ísraelskra yfirvalda. Fjórir særðust í sprengingunni og tveir til viðbótar særðust er þeir leituðu skjóls.
Í myndskeiði á samfélagsmiðlum hótar Netanjahú hefndum og segir meðal annars: „Við höfum hafið árásir í fortíðinni og við munum hefja árásir í framtíðinni.“ Í kjölfar árásarinnar aflýstu flugfélög eins og Lufthansa, Air India og British Airways flugferðum til Tel Avív í nokkra daga. Hútar heita áframhaldandi árásum á flugvelli í Ísrael.