30 ára Emil ólst upp fyrstu árin í Reykjavík en síðan í Kópavoginum frá fimm ára aldri. Hann gekk í Lindaskóla og stundaði hópfimleika hjá íþróttafélaginu Gerplu. Hann fór að vinna eftir grunnskólann í Gallerí 17 og lauk stúdentsprófi í fjarnámi. Þá fór hann til Slóvakíu í læknanám og lauk þar námi í fyrrasumar. „Það var alveg æðislegt að læra úti í Slóvakíu og ég eignaðist marga góða vini í náminu.“ Í dag vinnur Emil sem almennur læknir á Landspítalanum.
Helstu áhugamál Emils, fyrir utan starfið, eru líkamsrækt og útivera. „Síðan var ég að verða pabbi fyrir bara mánuði, svo að það er nóg að gera.“
Fjölskylda Sambýliskona Emils er Sólveig Pétursdóttir, f. 18.2. 1997. Þau eignuðust son 12. apríl síðastliðinn, en hann verður skírður á næstunni.