Gísli Stefánsson
Nýlega heimsótti ég Orkneyjar, norður af Skotlandi, til að skoða orkuinnviði og framleiðslu á orku í eyjasamfélagi í Norður-Atlantshafi. Með mér í för voru fulltrúar nokkurra af þeim stórnotendum raforku sem eru með starfsemi í Vestmannaeyjum, sem og fulltrúar frá Umhverfis- og orkustofnun og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu.
Líkindin gefa góð fyrirheit
Markmið ferðarinnar var að skoða hvernig orkuframleiðsla, orkugeymsla og stjórnsýsla í orkumálum fer fram á Orkneyjum og í Skotlandi. Orkneyjar eru góður staður til að bera saman við Vestmannaeyjar, sama hvort horft er til landfræðilegrar legu, landslags, veðráttu eða núverandi stöðu í orkumálum sem og þeirrar þróunnar sem kann að koma upp í framtíðinni. Á Orkneyjum fer fram talsverð vindorkuframleiðsla auk þess sem eyjarnar eru miðstöð rannsókna á sviði sjávarfalla- og ölduvirkjana. Þegar þetta er skrifað geta orkumannvirki á eyjunum framleitt um 130% af orkuþörf samfélagsins.
Við urðum margs vísari
Hópurinn átti marga innihaldsríka fundi í ferðinni, m.a. með yfirvöldum á eyjunum, sem horfa þessa dagana til gríðarmikillar uppbyggingar í vindorku, sem og með The European Marine Energy Center (EMEC), sem heldur utan um helstu tilraunir er varða virkjun sjávarfallanna. Einnig hitti hópurinn mikilvæga þjónustu- og hagsmunaaðila í uppbyggingu grænna orkuinnviða. Þar má helst nefna Leask Marine sem þjónustar við uppsetningu og viðhald orkuinnviða á sjó, sem og hafnaryfirvöld á Orkneyjum, sem eru að vinna að metnaðarfullri uppbyggingu hafnarinnviða til að styðja við áætlanir um vindorkuver á sjó sem verður nokkur gígavött að stærð.
Gott aðgengi að orku = öflugt samfélag
Ferðin var liður í að finna leiðir til að auka samkeppnishæfni Vestmannaeyja hvað varðar orkuöryggi og orkuverð. Hugmyndin að ferðinni kviknaði þegar ég sat í starfshópi sem Guðlaugur Þór Þórðarson, fyrrverandi umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, skipaði og hafði það hlutverk að skoða leiðir til að efla samfélagið í Vestmannaeyjum á málefnasviðum ráðuneytisins.
Lausnir munu finnast
Ýmsar hugmyndir að lausnum kviknuðu í ferðinni sem munu nýtast í samtalinu um að leysa þann vanda í orkumálum sem Vestmannaeyjar hafa glímt við undanfarin misseri. Lausnirnar þurfa að snúa að því hvernig við getum náð niður húshitunarkostnaði í Vestmannaeyjum, sem eru á köldu svæði, sem og hvernig við bætum aðgengi að grænni orku fyrir fiskvinnslur og landeldi á laxi. Þrátt fyrir að hér sé varmadælustöð af bestu gerð ræðst verð á hita af markaðsverði orku og himinháum flutningsgjöldum. Í fiskvinnslunum snýst þetta um að bæta aðgengi að grænni orku til að draga úr olíunotkun. Staðan sem er uppi hér í dag veikir samkeppnishæfni samfélagsins og rýrir verðmætasköpunina. Þess vegna ætlum við að finna lausnirnar.
Höfundur er bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum og 2. varaþingmaður flokksins í Suðurkjördæmi.