Ísafjörður Glæsiskip í höfn.
Ísafjörður Glæsiskip í höfn.
Alls eru 197 skemmtiferðaskip væntanleg í hafnir Ísafjarðarbæjar í sumar og þau fyrstu voru vestra í síðustu viku. Komur skipanna dreifast nokkuð, en stundum eru stórir dagar. Þann 25. júlí verða fjögur skip á Ísafirði og samanlagður fjöldi farþega 8.103 manns

Alls eru 197 skemmtiferðaskip væntanleg í hafnir Ísafjarðarbæjar í sumar og þau fyrstu voru vestra í síðustu viku.

Komur skipanna dreifast nokkuð, en stundum eru stórir dagar. Þann 25. júlí verða fjögur skip á Ísafirði og samanlagður fjöldi farþega 8.103 manns. Slíkt álag var á sínum tíma umkvörtunarefni, en nú hafa verið sett viðmið um mengun og fjölda farþega í landi á hverjum tíma og er sátt um fyrirkomulagið. sbs@mbl.is