Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Fundur verður haldinn í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis nú í morgun kl. 9.30, en þar er ráðgert að fjalla um gagnaleka frá sérstökum saksóknara og skyld efni.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins á þar að ræða stöðuna almennt og án fordóma og hvað nefndin geti gert til að ná sem best utan um málið, átta sig á umfangi og ræða afmörkun þess. Mikilvægt sé enda að aðgerðir stjórnvalda stuðli að trausti á störfum lögreglu og ákæruvalds.
Til álita kemur að stefna Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra á opinn fund nefndarinnar á miðvikudag.
Hins vegar er talið að Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og nefndarmaður, víki sæti á þessum fundum, enda er hann fyrrverandi starfsmaður sérstaks saksóknara.