Stjórnvöld á Indlandi og í Pakistan sögðu í gær að vopnahlé ríkjanna, sem hófst á laugardaginn, væri enn í fullu gildi, þrátt fyrir ásakanir beggja um að hitt ríkið hefði brotið gegn skilmálum vopnahlésins á laugardaginn

Stjórnvöld á Indlandi og í Pakistan sögðu í gær að vopnahlé ríkjanna, sem hófst á laugardaginn, væri enn í fullu gildi, þrátt fyrir ásakanir beggja um að hitt ríkið hefði brotið gegn skilmálum vopnahlésins á laugardaginn.

Forsætisráðherra Pakistans, Shehbaz Sharif, sagði í gær að þjóð sín væri þakklát Bandaríkjastjórn fyrir að hafa stuðlað að vopnahléi í Kasmír-deilunni, en Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti á laugardagsmorgun að algjört og skilyrðislaust vopnahlé hefði tekið gildi eftir langar viðræður um nóttina.

Höfðu ríkin tvö þá skipst á eldflaugaárásum, og var óttast að allsherjarstríð væri í aðsigi.