Genf Bessent og Greer sögðu í gær að góður árangur hefði náðst.
Genf Bessent og Greer sögðu í gær að góður árangur hefði náðst. — AFP/Valentin Flauraud
Fulltrúar Bandaríkjanna og Kína sögðu í gærkvöldi að mikilvægur árangur hefði náðst í viðræðum ríkjanna, sem fóru fram í Genf um helgina, en þeim var ætlað að draga úr þeirri spennu sem tollastríð ríkjanna hefur skapað

Fulltrúar Bandaríkjanna og Kína sögðu í gærkvöldi að mikilvægur árangur hefði náðst í viðræðum ríkjanna, sem fóru fram í Genf um helgina, en þeim var ætlað að draga úr þeirri spennu sem tollastríð ríkjanna hefur skapað.

Scott Bessent fjármálaráðherra Bandaríkjanna sagði að viðræðurnar hefðu skilað „umtalsverðum árangri“, en nánar yrði greint frá honum í sameiginlegri yfirlýsingu ríkjanna sem á að birtast í dag. Jamieson Greer, ráðgjafi Trumps Bandaríkjaforseta, sem einnig sat viðræðurnar sagði í kjölfarið að samkomulag hefði náðst á milli ríkjanna, en var fámáll um hvað fælist í því samkomulagi.

Aðstoðarforsætisráðherra Kínverja, He Lifeng, sagði síðar um kvöldið að viðræðurnar hefðu skilað miklum árangri og að andrúmsloftið í þeim hefði verið hreinskiptið og uppbyggilegt. Li Chenggang alþjóðaviðskiptafulltrúi Kínastjórnar sagði að ríkin tvö hefðu orðið ásátt um að setja á fót sameiginlegan vettvang þar sem þau gætu átt í bæði „reglulegum og óreglulegum samskiptum“ í tengslum við viðskipti og tollamál.

Grunntollar Bandaríkjastjórnar á innflutningsvörur frá Kína eru nú 145%, og geta sumar kínverskar vörur borið allt að 245% toll. Kínverjar hafa á móti lagt 125% toll á bandarískar vörur. Trump Bandaríkjaforseti sagði fyrir viðræðurnar að það kæmi til greina að lækka tolla Bandaríkjanna á kínverskar vörur niður í 80% eða svo.

Ngozi Okonjo-Iweala, framkvæmdastjóri Alþjóðaviðskipta­stofnunarinnar WTO, sagði í yfirlýsingu eftir viðræðurnar að þær virtust boða gott um framhaldið. Væri það mikilvægt í ljósi þeirrar spennu sem nú ríkti í alþjóðamálum.