[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Sveindís Jane Jónsdóttir kvaddi í gær Wolfsburg með því að skora eitt mark og leggja annað upp í sigri á Leverkusen, 3:1, í lokaumferð þýsku knattspyrnunnar. Wolfsburg tryggði sér þar með annað sætið

Sveindís Jane Jónsdóttir kvaddi í gær Wolfsburg með því að skora eitt mark og leggja annað upp í sigri á Leverkusen, 3:1, í lokaumferð þýsku knattspyrnunnar. Wolfsburg tryggði sér þar með annað sætið. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir lagði upp mark Leverkusen sem endaði í fjórða sæti. Glódís Perla Viggósdóttir lék í 80 mínútur með meisturum Bayern München sem unnu Essen, 3:0, og Emilía Kiær Ásgeirsdóttir lék í 80 mínútur með RB Leipzig sem tapaði 2:0 heima fyrir Eintracht Frankfurt og endaði í áttunda sæti.

Ólympíufarinn Guðlaug Edda Hannesdóttir vann öruggan sigur í kvennaflokki í Kópavogsþríþrautinni sem fram fór við Kópavogslaugina í gærmorgun. Þetta var hennar fyrsta keppni á Íslandi í fjögur ár. Hún fór í gegnum þrautina á 37,16 mínútum en Guðbjörg Karen Axelsdóttir varð önnur á 43,47 mínútum. Sigurður Örn Ragnarsson sigraði í karlaflokki tíunda árið í röð á 35,33 mínútum og Stefán Karl Sævarsson varð annar á 37,16 mínútum. Nánar um þrautina á mbl.is/sport.

Kristian Nökkvi Hlynsson var með mark og stoðsendingu fyrir Spörtu frá Rotterdam í útisigri gegn Almere City í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á laugardaginn. Sparta hefur gulltryggt sæti sitt í deildinni. Nökkvi Þeyr Þórisson kom inn á sem varamaður í uppbótartíma hjá Spörtu.

Landsliðskonurnar Alexandra Jóhannsdóttir og Katla Tryggvadóttir skoruðu báðar fyrir Kristianstad þegar liðið vann Vittsjö, 3:2, í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á laugardaginn. Guðný Árnadóttir kom inn á hjá Kristianstad á 67. mínútu.

Spænski meistaratitillinn í knattspyrnu karla blasir við Barcelona eftir sigur á Real Madrid, 4:3, í mögnuðu uppgjöri stórveldanna í Barcelona í gær. Sjö stig skilja nú liðin að þegar þremur umferðum er ólokið. Kylian Mbappé skoraði tvö fyrstu mörk leiksins og var með þrennu fyrir Real Madrid en Raphinha skoraði tvö mörk fyrir Barcelona, Lamine Yamal og Eric Garcia eitt hvor, öll í fyrri hálfleik.

Ísak Andri Sigurgeirsson skoraði mark Norrköping sem gerði jafntefli við Hammarby, 1:1, á útivelli í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær. Hann lék í 72 mínútur og Arnór Ingvi Traustason lék allan leikinn á miðjunni hjá Norrköping.

Sandra María Jessen skoraði tvö mörk þegar Þór/KA vann KR auðveldlega, 6:0, í 16-liða úrslitum bikarkeppni kvenna í fótbolta í Boganum á Akureyri í gær. Amalía Árnadóttir, Margrét Árnadóttir, Emelía Ósk Kruger og Bríet Fjóla Bjarnadóttir skoruðu hin mörkin. Breiðablik vann FHL 3:0 í Fjarðabyggðarhöllinni á Reyðarfirði. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir, Berglind Björg Þorvaldsdóttir og Edith Kristín Kristjánsdóttir skoruðu mörkin.

Amanda Andradóttir, landsliðskona í knattspyrnu, varð hollenskur bikarmeistari á laugardaginn. Hún kom inn á sem varamaður hjá Twente á 73. mínútu þegar liðið sigraði PSV Eindhoven, 2:1, í úrslitaleiknum sem fram fór í Rotterdam.

Dortmund vann Blomberg-Lippe, 37:30, í fyrsta undanúrslitaleik liðanna um þýska meistaratitilinn í handknattleik. Andrea Jacobsen skoraði þrjú mörk fyrir Blomberg-Lippe og Andrea Jacobsen tvö.

Arsenal sótti mikilvægt stig á Anfield í 36. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í gær en Liverpool og Arsenal skildu þar jöfn, 2:2. Cody Gakpo og Luis Díaz komu Liverpool í 2:0 í fyrri hálfleik en Gabriel Martinelli og Mikel Merino svöruðu fyrir Arsenal í þeim síðari. Arsenal er því með tveggja stiga forystu á Newcastle í baráttunni um annað sætið.

Newcastle vann Chelsea, 2:0, í lykilleik baráttunnar um Meistaradeildarsæti. Sandro Tonali og Bruno Guimaraes skoruðu mörkin. Aston Villa náði í mikilvæg stig með því að vinna Bournemouth 1:0 á útivelli með marki Ollie Watkins en Manchester City og Nottingham Forest töpuðu óvænt dýrmætum stigum í leikjum við botnliðin Southampton og Leicester.