Jón Ármann fæddist í Kópavogi 12. maí 1955 og segist hafa verið „illa“ uppalinn þar. Hann gerðist snemma fremur baldinn og óútreiknanlegur og fór sínar eigin leiðir framan af ævi. Hann málaði hús í Noregi, vann við sprengingar og útskrifaðist sem sprengisérfræðingur frá Nobel Institut. Og þar með er ekki öll sagan sögð.
„Ég skrifaði barnabækur og barnaefni fyrir sjónvarp, stofnaði auglýsingastofu, hannaði og seldi sparibauka til banka um allan heim, gerði upp hús í Þingholtunum og bjó með konu og börnum í tveimur herbergjum meðan á því stóð og sannfærði svo konu og börn um að best væri að flytja til Ameríku í leit að nýjum tækifærum.“
Jón Ármann fór í tveggja ára framhaldsnám í kvikmyndagerð við UCLA í Santa Monica og vann við kvikmyndir og sjónvarp í Hollywood næstu árin ásamt því að vera fréttaritari Bylgjunnar og Stöðvar 2. Hann var með vikulega pistla í Bítinu. „Það var nú eiginlega uppistand en ekki fréttamennska, nema jú að nafninu til,“ segir hann og hlær.
Svo lá leiðin heim til Íslands aftur eftir hrun og við tók hugbúnaðargerð með elsta syninum, Ármanni Kojic. Eftir það stofnuðu þeir feðgarnir nanótæknifyrirtæki í Silíkondal og á Íslandi og þá var komið að stóra skrefinu – að fara á eftirlaun.
„Nú er ég, afmælisbarnið, formlega kominn á hagabeit og hættur að vinna, enda heilsan aðeins farin að minna á gamlar syndir og kæruleysi. En það er enn gaman að vakna á morgnana,“ segir Jón Ármann sem vinnur að hugðarefnum sem hafa lengi safnað ryki í geymslum síðustu áratugi.
„Nú er ég að vinna handrit um talandi ísbjörn eftir bók sem ég skrifaði 2008. Þá er í bígerð þáttasería um Geirfinnsmálið en ég gaf út bókina Leitin að Geirfinni nú fyrir síðustu jól og hún er að fæða af sér önnur verkefni,“ bætir hann við. „Það eru ókláruð eldri snilldarinnar ritverk sem aldrei voru skrifuð, en verða vonandi að bíó eða bók einhvern tímann.“
Afmælisveisla
„Mér brá þegar Helena dóttir mín og Ivana sambýliskona mín „hótuðu“ mér með 70 kerta rjómatertu og veislu á þessum afmælisdegi. Það varð tilefni að mynd sem ég náttúrulega eyðilagði með fíflagangi. En áfanginn er frábær upplifun og allir eru ekki svo lánsamir að ná honum. Ég hefði aldrei trúað því þegar ég var strákur að ég næði eftirlaunaaldri. Nú eru 25.567 lífdagar að baki. Ég held að áttræðisaldurinn sem nú er fram undan sé tæplega nógur tími fyrir mig til að læra eitthvað sem skiptir máli. Vil meira. Hlakka til næstu 30 ára og krosslegg fingur og tær í von um góða heilsu.“
Brúðkaupið
Jón Ármann og Ivana Milicevic ætla að nýta tækifærið og gifta sig á afmælisdaginn í dag. „Ef pappírarnir frá sýslumanninum í Vestmannaeyjum koma ekki í póstkassann fyrir afmælisdaginn verður það í vikunni. Sá mæti embættismaður þarf að kvitta upp á framtíðarplönin okkar og staðfesta að ég sé með fullu viti og lögráða, en þetta er skilyrði númer eitt af því Ivana er ekki íslenskur ríkisborgari og hjónabandið væri ógilt nema með tommu þykku pappírsfargani frá bæði Serbíu og Íslandi. Ivana er frá Belgrad og við erum stödd í Króatíu þar sem við ætlum að láta vaða.“
Fjölskylda
Eiginkona Jóns Ármanns er eða verður Ivana Milicevic, f. 5.3. 1972, skrifstofustjóri, og þau búa í Reykjavík. Áður var Jón Ármann kvæntur Gunnhildi Hreinsdóttur, f. 30.9. 1954, og þau eiga dótturina Helenu Dúnu, f. 11.10. 1996. Áður átti Jón Ármann soninn Ármann Kojic, f. 19.7. 1977, með Írenu Guðrúnu Kojic, f. 6.7. 1956. Eiginkona hans er Joanna Kojic, f. 20.4. 1981, og þau eiga dæturnar Milenu Evu Kojic, f. 21.6. 2019, og Aþenu Emmu Kojic, f. 13.6. 2022, og þau búa í Reykjavík.
Bróðir Jóns Ármanns er Halldór Jóhann Guðmundsson, f. 27.9. 1956, og hann býr í Kópavogi.
Foreldrar Jóns Ármanns eru Guðmundur Steinn Einarsson, f. 28.5. 1917, d. 28.12. 1985, kennari, smiður, m.m. og frumkvöðull í kennslu heyrnarlausra, og Guðrún Jónsdóttir, f. f. 18.7. 1916, d. 5.5. 1996. Hún hafði mikinn áhuga á guðfræði og gerðist kaþólsk og var í klaustri á Ítalíu, Sviss, Frakklandi og í Danmörku. Hún kynntist Guðmundi 1954 þegar hún kom til Íslands og þau giftust. Hún varð kennari og síðar mannfræðingur og ritari hjá jarðfræðideild Háskóla Íslands í 20 ár. Þau bjuggu í Kópavogi.