Vinastræti Oddfellowar ganga sameinaðir fram eftir Stórstúkuþing og byggja 5.000 fermetra hús í Urriðaholti.
Vinastræti Oddfellowar ganga sameinaðir fram eftir Stórstúkuþing og byggja 5.000 fermetra hús í Urriðaholti.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Steindór Gunnlaugsson var kosinn stórsír á Stórstúkuþingi Oddfellowreglunnar um helgina. Tvær tilnefningar bárust til embættisins og var kosið á milli Steindórs og Hervarar Pálsdóttur. Steindór var varastórsír reglunnar og því þurfti að kjósa varastórsír eftir að niðurstaða kosningarinnar lá fyrir

Baksvið

Óskar Bergsson

oskar@mbl.is

Steindór Gunnlaugsson var kosinn stórsír á Stórstúkuþingi Oddfellowreglunnar um helgina. Tvær tilnefningar bárust til embættisins og var kosið á milli Steindórs og Hervarar Pálsdóttur. Steindór var varastórsír reglunnar og því þurfti að kjósa varastórsír eftir að niðurstaða kosningarinnar lá fyrir. Kosið var á milli Stefáns Stefánssonar og Guðmundar Þórhallssonar og var Stefán kjörinn. Hafdís Stefánsdóttir varastórsír systra gaf kost á sér til endurkjörs og var sjálfkjörin í embættið.

Sameinuð eftir kosningar

Áfram í stjórn Stórstúkunnar til ársins 2027 eru Konráð Konráðsson stórféhirðir bræðra og Petrína Helga Ottesen stórritari systra. Ólöf Kristjánsdóttir var sjálfkjörin í nýtt embætti stórféhirðis systra. Tveir voru tilnefndir í embætti stórritara bræðra og voru það Halldór Þórður Haraldsson og Sveinn Guðmundsson. Sveinn dró framboð sitt til baka og var Halldór því sjálfkjörinn í embættið.

Steindór segir að Oddfellowreglan á Íslandi sé mjög sterk og áfram verði unnið að því að byggja upp á sterkum grunni fyrri kynslóða. Stórsírar allra ríkja Norðurlanda nema Finnlands voru gestir Stórþingsins og höfðu orð á því hvað reglustarfið á Íslandi gengi vel. Ísland er eina Norðurlandaríkið þar sem fjölgun er og eru reglubræður og -systur nú um 4.000.

„Það eru spennandi tímar fram undan og við komum sterk og samhent frá þessu þingi. Þó að það séu kosningar ríkir vinskapur á milli bræðra og systra, því við erum öll samherjar og tilbúin að verja tíma okkar og kröftum í anda reglunnar. Við göngum út af þessu stórþingi með bros á vör og gleði í hjarta.“

Nýbygging í Urriðaholti

Oddfellowreglan hefur hafið byggingu nýs húss í Urriðaholti sem áformað er að verði tilbúið eftir þrjú ár. Byggingin hefur verið í undirbúningi í þrjá áratugi.

„Við það verður gríðarleg breyting á högum reglunnar hér á höfuðborgarsvæðinu. Húsnæðið verður við Vinastræti, í landinu sem okkur var gefið af 61 reglubróður árið 1957. Þeir keyptu jörðina Urriðakot þar sem Urriðaholtshverfið, Kauptúnsreiturinn og IKEA eru. Þarna erum við að byggja 5.000 fermetra hús sem verður regluheimili með þremur sölum ásamt veitingasölum og ýmsu sem verður mikil lyftistöng fyrir Oddfellowregluna.“

Steindór tekur fram að ekki standi til að Oddfellowar flytji starfsemi sína úr Vonarstræti heldur verði þetta viðbót við starfsemi reglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

„Innan reglunnar er starfandi almannaheillafélag með gríðarlega fjársterkan sjóð sem getur til langrar framtíðar styrkt nærumhverfi okkar, en það er inntak Oddfellowreglunnar að styrkja samfélag okkar,“ segir Steindór.

Hefur gefið stórar gjafir

Elstu rituðu heimildir um Oddfellowregluna eru frá 1537. Reglan barst frá Bretlandi til Bandaríkjanna þegar Oddfellowinn Thomas Wildey fluttist þangað.

Fyrstu árin voru eingöngu karlmenn í reglunni en árið 1851 var fyrsta kvennastúkan stofnuð og nefnast þær Rebekkustúkur. Oddfellowreglan á Íslandi var stofnuð 1897 og hefur gefið margar stórar gjafir til íslensks samfélags. Danskir Oddfellowar gáfu þjóðinni holdsveikraspítala sem byggður var í Laugarnesi 1898. Heilsuhælisfélagið var stofnað 19. nóvember 1905 að forgöngu Guðmundar Björnssonar landlæknis og félaga hans í Oddfellowstúkunni Ingólfi. Fjórum árum síðar var Vífilsstaðahælið vígt. Almannaheillafélag reglunnar leggur á hverju ári til styrki til stuðnings við samfélagið.

Höf.: Óskar Bergsson