„Sveitarstjórn fylgist náið með stöðunni, dag frá degi,“ segir Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri í Norðurþingi. Svo gæti farið að starfsemi kísilmálmverksmiðjunnar PCC á Bakka við Húsavík stöðvist.
Afurðir fyrirtækisins á mörkuðum erlendis hafa fallið skarpt í verði að undanförnu, á sama tíma og kísíljárnið sem álverin hér nota er flutt í stórum stíl til Íslands. Því vilja stjórnendur PCC að verði svarað með verndartollum. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra staðfestir að ráðuneyti sitt fylgist með framvindu mála og aðstæðum á Bakka.
Allt að 150 manns hafa að undanförnu starfað á Bakka, auk þess sem margir sinna afleiddum störfum við framleiðsluna. » 2