Jeff Bonner í Ohio hefur aðeins stundað býflugnarækt í rúmt ár en fékk nýlega óvæntan gest. Hreyfiskynjarar við býflugnabú hans vöruðu hann við óvenjulegri umferð og þegar hann skoðaði myndavélarnar sá hann björn í búinu sínu. Bonner hraðaði sér á vettvang en björninn var þá horfinn – ásamt búinu. Það litla sem var eftir af búinu fannst síðar í skóginum. „Hann át bókstaflega heilt bú,“ sagði Bonner og átti þar við býflugur, vax og allt tilheyrandi. Bonner hefur nú komið fyrir rafmagnsgirðingu og fleiri myndavélum til að verja búin sín. Nánar í furðufréttum á K100.is.