30 ára Hafdís ólst upp á Akranesi og gekk þar í skóla. Hún lauk stúdentsprófi frá MA og fór þaðan í iðnaðarverkfræði í Háskóla Íslands. Síðan var förinni heitið til Danmerkur þar sem hún lauk meistaraprófi í iðnaðarverkfræði og stjórnun í Danska tækniháskólanum, DTU, í Lyngby

30 ára Hafdís ólst upp á Akranesi og gekk þar í skóla. Hún lauk stúdentsprófi frá MA og fór þaðan í iðnaðarverkfræði í Háskóla Íslands. Síðan var förinni heitið til Danmerkur þar sem hún lauk meistaraprófi í iðnaðarverkfræði og stjórnun í Danska tækniháskólanum, DTU, í Lyngby. Hafdís starfar sem gagnasérfræðingur hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins.

Helstu áhugamál Hafdísar eru útihlaup og eiginlega öll útivera og hreyfing. Síðan hefur hún gaman af lestri og að prjóna. Hafdís er komin aftur á heimaslóðirnar, er nýflutt upp á Skaga með kærasta sínum, Snorra Birni Atlasyni, hönnuði hjá Sæplasti.