Albert Þór Jónsson
Lækkun skatta er verðmætasköpun því hún leiðir til aukinna fjárfestinga og fleiri nýjunga og uppfinninga til vaxtar sem leiðir til meiri umsvifa og aukinna skatttekna.
Til að lækka skuldir ríkissjóðs þarf að auka umsvif og stækka kökuna. Ríkisstjórn Íslands þarf að fara að skilja þetta einfalda hagfræðilögmál. Til að ná árangri í knattspyrnu þarf meðal annars góða liðsheild, aga, leikskipulag, vinnusemi og leikgleði. Ekki er nóg að senda einn langan fram og sjá hvað gerist. Mikilvægt að grunnatriði knattspyrnunnar, móttaka og sending, séu framúrskarandi, annars verður þetta yfirleitt erfitt. Sóknarbolti er einfaldlega besti möguleikinn til sigurs og árangurs.
Sóknarfæri Íslands eru óendanleg í verðmætasköpun á næstu áratugum vegna legu landsins og eftirsóknarverðra auðlinda.
Ísland er einstakt land, meðal annars vegna legu sinnar, menningar, tungu og hæfileikaríkra Íslendinga á mörgum sviðum. Styrkleikar landsins felast einnig í smæð þess og vel menntuðu fólki. Ísland er ríkulega búið náttúruauðlindum sem eiga eftir að margfaldast að verðmæti á þessari öld. Náttúra landsins er einstök en íslensk víðerni og óviðjafnanleg náttúrufegurð munu leiða til endalausrar eftirspurnar.
Skýr framtíðarsýn og leiðtogafærni býr til vinningslið
Mikilvægustu þættir í rekstri fyrirtækja og stofnana á næstu áratugum eru skýr framtíðarsýn og leiðtogafærni þeirra sem stjórna. Hámarka þarf nýtingu fjármuna sem skattgreiðendur landsins greiða til samfélagsins og þá þarf að umgangast með meiri virðingu. Yfirskrift greinarinnar gefur til kynna að ekki sé nóg að senda einn langan fram og sjá hvað gerist, sem er ekkert ólíkt stefnu núverandi stjórnvalda, þar sem fjársjóður Íslands virðist ekki nýttur á sem bestan hátt vegna skorts á stefnumörkun og framtíðarsýn. Nú þarf að byrja að spila sóknarbolta, sem er einfaldlega besti möguleikinn til sigurs og árangurs.
Á næstu árum mun krafa almennings og skattgreiðanda um betri meðferð almannafjár og betri nýtingu fjármuna að hætti hinnar hagsýnu húsmóður aukast. Í mikilvægustu málaflokkunum, menntamálum, heilbrigðismálum og samgöngumálum, virðist skorta framtíðarsýn og alla stefnumörkun til langs tíma, en þessir þrír málaflokkar nema samtals um 65% af ríkisútgjöldum. Mjög mikilvægt er að ná góðum tökum á þessum málaflokkum með hagræðingu og skarpri framtíðarsýn. Opinber stjórnsýsla á Íslandi þarf að fara í gegnum mikla endurskipulagningu og hagræðingu á næstu árum vegna aukinna krafna skattgreiðenda og almennings um meiri árangur og betri meðferð fjármuna. Í stafrænni veröld er hægt að ná mun meiri árangri, en einstakar opinberar stofnanir hafa náð framúrskarandi árangri á því sviði. Á næstu misserum þurfa opinberir aðilar að hafa góð gildi í heiðri eins og ábyrgðartilfinningu, ráðdeild og útsjónarsemi og forðast hégómagirnd og sýndarmennsku í innkaupum. Veljum íslenska framleiðslu og sköpum störf um allt land með hugrekki og ástríðu fyrir Íslandi. Lækkum skatta og sækjum fram af krafti með ástríðu fyrir Íslandi. Fjármagn er orka framfara og sóknar. Sóknarbolti er einfaldlega besti möguleikinn til sigurs og árangurs í framtíðinni.
Höfundur er viðskiptafræðingur (cand. oecon).