Hvammstangi Vegir liggja til allra átta, eins og segir í frægum texta.
Hvammstangi Vegir liggja til allra átta, eins og segir í frægum texta. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti á fundi sínum í síðustu viku að hefja formlegar viðræður við sveitarstjórn Húnaþings vestra um hugsanlega sameiningu þessara tveggja samliggjandi sveitarfélaga. Mál þetta hefur verið í deiglu um nokkurt skeið, eins og sagt hefur verið frá í Morgunblaðinu

Sigurður Bogi Sævarsson

sbs@mbl.is

Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti á fundi sínum í síðustu viku að hefja formlegar viðræður við sveitarstjórn Húnaþings vestra um hugsanlega sameiningu þessara tveggja samliggjandi sveitarfélaga. Mál þetta hefur verið í deiglu um nokkurt skeið, eins og sagt hefur verið frá í Morgunblaðinu. Forsendur fyrir hugsanlegri sameiningu hafa verið ræddar og kannaðar og nú er skrefið stigið lengra. Fulltrúar Dalabyggðar í samstarfsnefnd um þetta verða Ingibjörg Þóranna Steinudóttir og Skúli Hreinn Guðbjörnsson. Með þeim starfar Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri Dalabyggðar.

Í bókun beinir sveitarstjórnin í Dölum því til samstarfsnefndar að stefnt verði að kosningu um sameiningu eigi síðar en í desember á þessu ári. Nefndin skuli leita eftir sjónarmiðum og hugmyndum íbúa, starfsmanna og annarra við undirbúning tillögu til sameiningar. Gera á verk- og tímaáætlun fyrir ferlið og sækja framlag úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til að mæta kostnaði sem af hlýst.

Mál þetta verður afgreitt endanlega úr sveitarstjórn Dalabyggðar eftir tvær umræður; sú síðari verður í júní. Hlutirnir verða svo teknir með líku lagi í Húnabyggð vestra, en þaðan koma í samráðsnefndina þeir Magnús Magnússon og Magnús Vignir Eðvaldsson.

Með sameiningu yrði til sveitarfélag í landfræðilegri miðju Norðvesturkjördæmis með 1.927 íbúum. Í Dalabyggð, þar sem Búðardalur er þéttbýlið, eru 675 íbúar. Í Húnaþingi vestra búa 1.252 manns, þar af tæpur helmingur á Hvammstanga.

Höf.: Sigurður Bogi Sævarsson