Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Glatt var á hjalla í Smáralind á laugardag þar sem gestum og gangandi var boðið upp á ljúffenga tertu í tilefni af 70 ára afmæli Kópavogsbæjar sem var í gær, 11. maí. Bæjarfulltrúar skáru sneiðar úr tertunni sem á annað þúsund manns þáðu. Margt annað var gert í tilefni afmælisins; má þar nefna listviðburði fyrir börnin og í gær heimsótti Halla Tómasdóttir forseti Íslands Kópavog og fékk kynningu á menningarstarfi í Salnum. Má segja um þetta allt að maður sé manns gaman, eins og Hávamál herma.
„Í dag eru mörg spennandi verkefni fram undan hér í bæ,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri í samtali við Morgunblaðið, spurð um stöðuna í bænum á líðandi stundu og það sem fram undan er. Íbúar eru nú 41.439 og hefur fjölgað skarpt á seinni árum.
„Bærinn okkar mun þróast og vaxa í takt við þarfir íbúa. Við erum að úthluta í nýju hverfi í efri byggðum Kópavogs, þar sem nýr leik- og grunnskóli mun líta dagsins ljós. Þá er spennandi uppbygging fram undan á Kársnesi en við höfum verið að móta okkar sýn á svæðinu. Í þeirri vinnu höfum átt vandað og gott samráð við íbúana sem þekkja svæðið einna best. Þá munum við sjá nýjan miðbæ reistan á næstu árum með áherslu á fjölbreytta verslun og þjónustu. Svæðið mun svo tengjast með skemmtilegum hætti okkar öflugu menningarhúsum. Þrátt fyrir að vera stórt sveitarfélag sem fer stækkandi ætlum við okkur að standa vörð um þennan hlýlega bæjarbrag sem einkennir Kópavogsbæ, því það er það sem skiptir íbúa máli,“ segir Ásdís.