Ísland lauk undankeppni Evrópumóts karla í handknattleik með því að sigra Georgíu mjög auðveldlega í Laugardalshöllinni í gær, 33:21.
Íslenska liðið vann þar með alla sex leiki sína og fékk fullt hús stiga í riðlinum en auk Íslands náðu aðeins Króatía og Slóvenía að vinna alla sína leiki í undankeppninni.
Úrslitin voru nánast ráðin í hálfleik en þá var staðan 20:11 eftir að Ísland hafði komist tíu mörkum yfir. Í seinni hálfleik munaði mest 14 mörkum en georgíska liðið náði að laga stöðuna aðeins undir lokin.
Georgía hafði fyrir leikinn tryggt sér annað sæti riðilsins og sæti á EM og fékk sex stig. Grikkir unnu Bosníu 30:23 og enduðu í þriðja sæti með fjögur stig en það var ekki nóg til að komast í lokakeppnina. Bosnía fékk tvö stig.
Austurríki, Sviss, Ítalía, Serbía, Pólland, Rúmenía, Norður-Makedónía og Úkraína tryggðu sér átta síðustu sætin í lokakeppninni sem voru á lausu fyrir síðustu umferðina í gær. Lokakeppnin fer fram í Danmörku, Noregi og Svíþjóð í janúar 2026.
Orri Freyr Þorkelsson skoraði 8 mörk gegn Georgíu, Þorsteinn Leó Gunnarsson 4, Óðinn Þór Ríkharðsson 4, Janus Daði Smárason 3, Kristján Örn Kristjánsson 3, Ómar Ingi Magnússon 2, Andri Már Rúnarsson 2, Reynir Þór Stefánsson 2, Arnar Freyr Arnarsson 2, Viggó Kristjánsson 1, Ýmir Örn Gíslason 1 og Elvar Örn Jónsson 1. Viktor Gísli Hallgrímsson varði 15 skot í marki Íslands og Ísak Steinsson 2.