Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Mikilvægt er að stjórnvöld breyti í ýmsu þeim reglum í skattamálum sem björgunarsveitirnar starfa samkvæmt, þannig að peningar sem sveitirnar safna nýtist beint til starfs þeirra og framkvæmda. Fella ætti niður virðisaukaskatt sem rúmlega 90 björgunarsveitir landsins, skipaðar sjálfboðaliðum, greiða vegna starfsemi sinnar, sbr. að þær eru hluti af kerfi almannavarna í öryggi og viðbúnaði í landinu.
Góðum vilja þurfa að fylgja aðgerðir
Um þetta og fleira var ályktað á landsþingi Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem haldið var á Selfossi um helgina. „Þau sjónarmið, að björgunarsveitir og önnur samtök sem sinna öryggismálum og aðgerðum njóti afsláttar í skattamálum, njóta skilnings. Góðum vilja þurfa hins vegar að fylgja aðgerðir,“ segir Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir, formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
„Í dag fá sveitir okkar felldan niður virðisaukaskatt af því sem er skilgreint sem björgunarbúnaður. Þetta þarf hins vegar að vera víðtækara og ná til meðal annars byggingarframkvæmda. Nokkrar björgunarsveitir, svo sem á Flúðum og Höfn, eru nú í framkvæmdum, þar sem undir eru tugir og stundum hundruð milljóna króna. Þar hefðum við kosið að fá felldan niður virðisaukaskatt af aðföngum og vinnu iðnaðarmanna á verkstað. Stór hluti af kostnaði við þessar framkvæmdir er virðisaukaskattur sem greiða þarf; það er í raun framlög sjálfboðaliða. Ágóði af sölu flugelda, neyðarkallsins og söfnun á gosdósum fer því að stórum hluta til ríkisins sem skattur.“
Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir hefur gegnt formennsku í Landsbjörg frá haustdögum 2023, eða frá því Otti Rafn Sigmarsson úr Grindavík steig til hliðar vegna anna og þeirra aðstæðna sem myndast höfðu í heimabyggð hans. Nú hefur Fjóla formlega verið kjörin formaður til tveggja ára. Landsþingið á Selfossi þótti takast vel, en það sóttu um 450 manns úr deildum Landsbjargar allt í kringum landið.
Litið til lands og sjávar
„Að þessu sinni voru sjóbjörgunarmál í deiglunni, svo stór þáttur sem þau eru í starfi okkar,“ segir Borghildur Fjóla og bætir við:
„En við lítum einnig til landsins. Höfum til dæmis verið í verkefnum í Grindavík á síðustu misserum lært margt, svo sem um vettvangsstjórn. Einnig sjáum við nú að mörg verkefni, eins og upp hafa komið í Grindavík, svo sem mönnun á lokunarpóstum, eru falin öðrum en björgunarsveitafólki í sjálfboðastarfi sem á að einbeita að sér að björgun og fyrstu hjálp.“