Norður ♠ 105 ♥ 7 ♦ G5 ♣ KDG9863 Vestur ♠ ÁG9763 ♥ 42 ♦ Á964 ♣ 7 Austur ♠ D2 ♥ Á10865 ♦ K10832 ♣ 5 Suður ♠ K84 ♥ KDG9 ♦ D7 ♣ Á1042 Suður spilar 3G

Norður

♠ 105

♥ 7

♦ G5

♣ KDG9863

Vestur

♠ ÁG9763

♥ 42

♦ Á964

♣ 7

Austur

♠ D2

♥ Á10865

♦ K10832

♣ 5

Suður

♠ K84

♥ KDG9

♦ D7

♣ Á1042

Suður spilar 3G.

Þrjár bandarískar kvennasveitir kepptu um tvö sæti í kvennaflokki á heimsmeistaramótinu í Danmörku í ágúst. Hjördís Eyþórsdóttir spilaði í sveit Lindu Lewis sem dró stutta stráið og varð að sætta sig við þriðja sætið í keppninni.

Hjördís og Arti Bhargava spilafélagi hennar fengu stóra sveiflu í spilinu að ofan í leik við sveit Lynn Baker. Við annað borðið spiluðu liðsmenn Baker 3♣ í NS sem unnust slétt þegar vestur spilaði út ♠Á.

Við hitt borðið opnaði hin sænskættaða Sandra Rimstedt á 2♥ í austur, sýndi 5-5 í hjarta og láglit og veik spil. Hjördís sagði 2G í suður og Bhargava lyfti í 3G. Cecilia Dwyer Rimstedt, systir Söndru, spilaði út ♥4, Sandra drap með ás og Hjördís lét drottninguna undir. Vörnin getur nú tekið næstu 11 slagi en ♥4 gat verið þriðja hæsta spilið frá fjórlit og þegar Sandra spilaði hjarta áfram átti Hjördís níu slagi.