Óskar Bergsson
oskar@mbl.is
„Kristnin er gleðiboðskapur og þess vegna eigum við að birtast fólki með gríni og glensi án þess að fara yfir mörk hjá fólki,“ segir sr. Pétur Þorsteinsson eftir síðustu messu sína í Kirkju Óháða safnaðarins þar sem hann hefur þjónað í 30 ár. „Við eigum að sýna fram á það að kirkjan sé glöð og kát og þetta sé ekki bara eilíf jarðarför í messunni. Ég vil frekar tala um jarðarfjör en jarðarför og sumir segja að hann sé kolklikkaður, þessi klikkklerkur í Óháða söfnuðnum, en ég tel að á erfiðum stundum eins og við aðskilnað ástvina eigi að leita huggunar í fjöri innan hóflegra marka.“ Pétur segir að prestarnir séu á dauðalista djöfulsins sem sæki oft að þeim.
Finnur þú fyrir djöflinum þegar hann sækir að þér?
„Já, já, oft á tíðum og maður má ekki falla í freistni. Freistingin er djöfullinn og synd merkir sundrung manns og guðs og þegar menn verða óvinir er sambandi sundrað.“
Standa þeir frammi fyrir djöflinum sem standa frammi fyrir freistingum?
„Já, menn finna að hann sé til staðar og þurfa að passa sig og við reynum að afdjöfla fólk, frelsa og vera staðföst í trúnni.“
Pétur kallaði síðustu messu sína yfir söfnuðinum lífslokamessu.
Hver er munurinn á lífslokamessu og sálumessu?
„Sálumessa er sungin þegar þú ert dauður. Í sálumessu er beðið fyrir sálinni áður en farið er í hreinsunareldinn. Ertu búinn að ákveða, Óskar, hvort þú verður grillaður eða grafinn og hvar verður búkarest hjá þér?“
Fátt varð um svör hjá blaðamanni.
Pétur segist þakklátur fyrir að hafa fengið að vera aðeins öðruvísi.
„Ég hef verið með galdramessur og furðufatamessur og úlfaguðsþjónstu þar sem við brytjum Búkollu niður í lokin og étum hana. Síðan hef ég verið með ABBA-messur, gæludýramessur, bítlamessur og fleira. Það ráku margir upp stór augu þegar ég byrjaði með balletttjáningu á páskadagsmorgun. Þá túlka dansarar það þegar lærisveinarnir eru niðurbrotnir eftir djöfladaginn, þegar djöfullinn hafði drepið drottin. Svo kemur gleðin sem þau tjá í dansinum og þetta hefur verið árviss viðburður hér í kirkjunni síðan,“ segir Pétur að lokum.