Húsavík Viðsjár eru nú á Bakka.
Húsavík Viðsjár eru nú á Bakka. — Morgunblaðið/Hari
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
„Útlitið er dökkt í augnablikinu,“ segir Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri í Norðurþingi. Eins og fram hefur komið eru nú viðsjár í rekstri kísilmálmverksmiðjunnar PCC á Bakka norðan við Húsavík

Sigurður Bogi Sævarsson

Guðmundur Hilmarsson

„Útlitið er dökkt í augnablikinu,“ segir Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri í Norðurþingi. Eins og fram hefur komið eru nú viðsjár í rekstri kísilmálmverksmiðjunnar PCC á Bakka norðan við Húsavík. Líklegt er að rekstur þar stöðvist senn, samanber að verð á kísilmálmi sem verksmiðjan við Húsavík framleiðir og selur til Evrópu hefur fallið mjög í verði að undanförnu. Á sama tíma er mikið flutt inn af kísiljárni sem hráefni í framleiðslu álveranna á Íslandi.

„Starfsemi PCC á Bakka er mikilvæg fyrir samfélagið á Húsavík og sveitarfélagið Norðurþing. Sveitarstjórn fylgist náið með stöðunni dag frá degi og fundað verður á næstu dögum vegna þessa með ráðamönnum, þingmönnum kjördæmisins og Samtökum iðnaðarins,“ segir Katrín. Hún leggur áherslu á mikilvægi þess að ráðamenn séu upplýstir um stöðuna, rétt eins og gert hafi verið.

„Á bilinu 130-150 starfsmenn vinna hjá PCC Bakka þegar verksmiðjan er keyrð á fullum afköstum. Svo eru margir verktakar sem hafa atvinnu af þjónustu við fyrirtækið,“ segir sveitarstjórinn.

Eins og Morgunblaðið hefur greint frá hefur PCC BakkiSilicon hf. (PCC) kært innflutning á kísilmálmi frá Kína til Íslands. Fjármála- og efnahagsráðuneytið er með málið, sem er að inntaki ósk um að fyrirtækið njóti viðskiptaverndar í krafti tolla. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra upplýsti á mbl.is í gær að fulltrúar ráðuneytis hans hefðu rætt stöðuna við stjórnendur PCC. Staða fyrirtækisins væri þröng.

Höf.: Sigurður Bogi Sævarsson