Bygging Guðshúsið er syðst og vestast í Selfossbæ. Ingólfsfjall í baksýn.
Bygging Guðshúsið er syðst og vestast í Selfossbæ. Ingólfsfjall í baksýn. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Uppsteypu er lokið og kominn er heildstæður svipur á kaþólskt guðshús sem nú er verið að reisa við Móaveg, syðst og vestast í byggðinni á Selfossi. Byggingu þessari er ætlað að þjóna söfnuði kaþólskra á Suðurlandi, sem er orðinn allstór

Uppsteypu er lokið og kominn er heildstæður svipur á kaþólskt guðshús sem nú er verið að reisa við Móaveg, syðst og vestast í byggðinni á Selfossi. Byggingu þessari er ætlað að þjóna söfnuði kaþólskra á Suðurlandi, sem er orðinn allstór. Alls er grunnflötur þessa húss við Móaveg um 1.500 fermetrar en þarna verða á einum stað kirkja, safnaðarheimili og prests­bústaður.

Talsvert starf er meðal kaþólskra á Suðurlandi. Messur á íslensku eru einu sinni í viku á Selfossi og á pólsku mánaðarlega. Slíkar eru einnig reglulega í Þorlákshöfn og á Hvolsvelli, þar sem myndast hefur fjölmennt samfélag kaþólsks pólskumælandi fólks.

Þýsk hjálparsamtök kaþólsku kirkjunnar leggja fjármuni til byggingarinnar á Selfossi og eru helsti bakhjarl verkefnisins. sbs@mbl.is