Vatíkanið Páfinn flytur hér Maríubæn í upphafi fyrstu prédikunar sinnar.
Vatíkanið Páfinn flytur hér Maríubæn í upphafi fyrstu prédikunar sinnar. — AFP/Filippo Monteforte
Hinn nýkjörni páfi Leó 14. flutti í gær fyrstu sunnudagsprédikun sína og varaði þar við hættunni á nýrri heimsstyrjöld nú þegar ófriður ríkti víða um heim. Vék páfinn orðum sínum sérstaklega að endalokum síðari heimsstyrjaldarinnar, en í síðustu…

Hinn nýkjörni páfi Leó 14. flutti í gær fyrstu sunnudagsprédikun sína og varaði þar við hættunni á nýrri heimsstyrjöld nú þegar ófriður ríkti víða um heim.

Vék páfinn orðum sínum sérstaklega að endalokum síðari heimsstyrjaldarinnar, en í síðustu viku voru 80 ár liðin frá því að friður komst aftur á í Evrópu. Skoraði Leó 14. á þjóðarleiðtoga að standa við þau fyrirheit sem gefin voru þá, um að binda enda á allar styrjaldir.

Sagði Leó að hann óskaði þess að brátt kæmist á réttlátur og varanlegur friður í Úkraínu, og lýsti sorg sinni vegna átakanna á Gasasvæðinu. Sagði hann að koma yrði neyðaraðstoð til óbreyttra borgara þar, á sama tíma og Hamas-samtökin yrðu að sleppa öllum gíslum sínum.