Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Veiðigjaldafrumvarpið er enn og aftur á dagskrá Alþingis í dag, en stjórnarmeirihlutanum mistókst að ljúka 1. umræðu á sérstökum aukafundi á laugardag, eins og Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis hafði stefnt að.
Mælendaskráin var raunar tæmd á laugardag, en atkvæðagreiðslu um afgreiðslu til nefndar var frestað þar sem sárafáir stjórnarliðar voru á þingfundi þrátt fyrir að hafa boðað til hans.
Vissara þótti að fresta henni, þar sem fram var komin tillaga stjórnarandstöðunnar um að frumvarpinu yrði vísað sem skattamáli til efnahags- og viðskiptanefndar fremur en til atvinnuveganefndar, og óvíst að stjórnin hefði menn í húsi til að fella hana.
Taugatitringur stjórnarliða
Til fyrrnefnds fundar var boðað þar sem sumum stjórnarliðum þótti 1. umræða um veiðigjaldafrumvarpið hafa tekið tímann sinn og sökuðu stjórnarandstöðuna um málþóf.
Ekki er óalgengt að efna til aukafunda, breyta starfsáætlun og bæta við dögum undir lok þingstarfa, en óvanalegt að það gerist svo snemma, hvað þá í 1. umræðu máls.
Það þótti ýmsum til marks um að stjórnarmeirihlutinn væri að „fara á taugum“, bæði með dagskrárbreytingu og þegar forseti teygði umræðu yfir miðnætti á fimmtudag. Af orðaskiptum í þinginu mátti ráða að samkomulag hefði verið um annað.
Hildur Sverrisdóttir þingflokksformaður sjálfstæðismanna vísar því á bug í samtali við blaðið að stjórnarandstaðan hafi viðhaft málþóf, það sé einfaldlega ekki hægt í 1. umræðu þar sem ræðutími er skammtaður.
„En það er ekkert að því að stjórnarandstaðan taki efnismikla umræðu um svo veigamikið mál. Síst þar sem það kom einkar illa unnið úr ríkisstjórn.“