Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Gagnalekinn og skyld mál verða til umræðu á vettvangi Alþingis í dag. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins verður fjallað um málið á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis nú fyrir hádegi, en í upphafi þingfundar síðdegis er einnig gert ráð fyrir að málið hljóti nokkurt rými.
Ekki er talið að fjallað verði um málið efnislega svo nokkru nemi á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar (SEN), heldur þurfi að ná utan um stöðu málsins og að hvaða leyti nefndin geti um það fjallað, hvert umfangið eigi að vera.
Líklegt er talið að nefndin kalli Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra til sín á opinn fund á næstunni.
Eins má telja fullvíst að bæði Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari og Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari verði boðin á fund hjá nefndinni, en sá fundur yrði tæplega opinn, enda hefur nefndin ekki heimild til þess að kveðja aðra en ráðherra á opna fundi.
Við upphaf þingfundar klukkan þrjú síðdegis eru óundirbúnar fyrirspurnir fyrstar á dagskrá og þar verður dómsmálaráðherra fyrir svörum. Blaðið hefur heimildir fyrir því að hennar bíði nokkrar fyrirspurnir viðvíkjandi þessu máli.
Ótal spurningar vakna
Þar hafa ýmsar spurningar vaknað um starfshætti hjá embætti sérstaks saksóknara (nú héraðssaksóknara) árin eftir hrun, en stjórnarandstöðuþingmaður, sem blaðið ræddi við í gær, segir að fram að þessu hafi fleiri spurningar vaknað en svör hafi fengist við.
„Og þau svör sem þó fást hafa vakið enn fleiri spurningar,“ sagði hann og kvaðst vonast til þess að dómsmálaráðherra gæti svarað einhverjum þeirra, án þess að hann vildi leggja málið að dyrum hans.
Verktökusamningur sérstaks saksóknara við rannsóknafyrirtækið PPP frá 2012 er meðal þess sem margir hafa staðnæmst við. Eftir að Rúv. greindi frá njósnum sem fyrirtækið stundaði á sínum tíma lýsti Ólafur Þ. Hauksson héraðssaksóknari (áður sérstakur saksóknari) yfir mikilli undrun og hneykslun á því, án þess þó að geta þess að sér hefði verið kunnugt um stofnun og starfsemi fyrirtækisins á sínum tíma. Hann nefndi ekki heldur að embættið hefði samið við það um verktöku á sviði löggæsluverkefna.
Eins og fram kemur í Morgunblaðinu er þó fleira, sem athygli vekur í því samhengi, svo sem að samningurinn var ekki rétt dagsettur. Í fyrri gögnum og yfirlýsingum sést líka að innan embættisins virtist mönnum fullkunnugt um til hvers PPP var stofnað og hverjir yrðu helstu viðskiptamenn.
Enn óvenjulegra er þó hið nána samstarf starfsmanna embættisins við skiptastjóra, þar á meðal skiptastjóra Milestone, en hann og fulltrúi hans fengu óheftan og eftirlitslausan aðgang að skjalahirslum embættisins, til þess að „róta í“ skjölum, sem tengdust Milestone.
Í því starfi nutu starfsmenn þrotabúsins m.a. liðsinnis Gríms Grímssonar, sem nú er þingmaður.
Gagnalekinn
Tekið upp á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar fyrir hádegi
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra fyrir svörum í fyrirspurnatíma í dag
Sérstakur saksóknari örlátur á aðgang að gögnum hjá embættinu
Skiptastjóri fékk að „róta“