Spurt var hvort orð væri til um þann sem fylgdi í fótspor forgöngumanns. Jú, reyndar: sporgöngumaður. Hið fyrra merkir m.a. frumkvöðull, frumherji, upphafsmaður: „Hann var forgöngumaður um stofnun minkabús á staðnum.“ Hitt þýðir m.a

Spurt var hvort orð væri til um þann sem fylgdi í fótspor forgöngumanns. Jú, reyndar: sporgöngumaður. Hið fyrra merkir m.a. frumkvöðull, frumherji, upphafsmaður: „Hann var forgöngumaður um stofnun minkabús á staðnum.“ Hitt þýðir m.a. eftirmaður eða sá sem fetar í slóð hins – og heldur þá bara áfram að reka minkabúið.