Vel viðraði um helgina á höfuðborgarsvæðinu og var iðandi mannlíf í miðborginni á laugardaginn. Kenndi þar ýmissa grasa, og átti það bæði við um Austurvöll og Ingólfstorg, þar sem hjólabrettakappar sýndu listir sínar á bekkjum og bitum sem þar eru
Vel viðraði um helgina á höfuðborgarsvæðinu og var iðandi mannlíf í miðborginni á laugardaginn. Kenndi þar ýmissa grasa, og átti það bæði við um Austurvöll og Ingólfstorg, þar sem hjólabrettakappar sýndu listir sínar á bekkjum og bitum sem þar eru.
Mikilvægast af öllu er að vera í góðu jafnvægi þegar stokkið er á brettinu, og vafðist það ekki fyrir þessum hjólabrettamanni.