Leó XIV. Nýr og örugglega góður og hjartahlýr páfi.
Leó XIV. Nýr og örugglega góður og hjartahlýr páfi. — AFP/Tiziana Fabi
Ljósvakahöfundur breytist í kaþólikka í hvert sinn sem páfakjör fer fram. Engin breyting varð á því í þetta sinn. Um leið og netmiðlar greindu frá því að nýr páfi hefði verið kjörinn flýtti ljósvakahöfundur sér heim og kveikti á Sky

Kolbrún Bergþórsdóttir

Ljósvakahöfundur breytist í kaþólikka í hvert sinn sem páfakjör fer fram. Engin breyting varð á því í þetta sinn. Um leið og netmiðlar greindu frá því að nýr páfi hefði verið kjörinn flýtti ljósvakahöfundur sér heim og kveikti á Sky.

Á Péturstorgi hafði mikill mannfjöldi safnast saman og beið eftir tilkynningu um hver hinn nýi páfi væri. Fólk veifaði, faðmaðist, söng og sumir grétu. Sú sem þetta skrifar er ekki mikil félagsvera en þarna var stemningin svo falleg, kærleiksrík og smitandi að tár runnu niður kinnar hennar. Svo kom nýr páfi fram á svalir og virtist vera verulega geðugur maður. Mannfjöldinn fagnaði honum ógurlega og það sást að hann var hrærður. Þá táraðist ljósvakahöfundur enn meir.

Trúleysingjarnir mega andvarpa eins og þeir vilja. Það breytir engu um þá skoðun ljósvakahöfundar að útsendingar Sky frá Róm síðustu daga og vikur hafi verið göfugt og fallegt sjónvarpsefni. Ljósvakahöfundur skammast sín alls ekkert fyrir að hafa kaþólskt hjarta, það hefur bara gert henni gott.

Sky-sjónvarpsstöðin hefur vaxið mjög í huga pistlahöfundar eftir að hafa sinnt Páfagarði svo fjarska vel síðustu vikur.

Höf.: Kolbrún Bergþórsdóttir