Óskar Bergsson
oskar@mbl.is
„Þetta er algjör valdníðsla. Andmælaréttur er ekki virtur og hér eru stjórnsýslulög augljóslega brotin,“ segir Svavar Þorsteinsson, einn eigenda að Hvaleyrarbraut 22, vegna ákvörðunar bæjarráðs Hafnarfjarðar um að leysa til sína lóðina og rífa allar byggingar á henni.
Hann segist nokkrum sinnum hafa sent bænum erindi þar sem farið er fram á að bærinn eigi frumkvæði að því að fjarlægja rústirnar, þar sem þær valdi bæði slysahættu og sjónmengun.
„Við erum búin að reyna margoft að fá bæinn til að samþykkja hlutaniðurrif, af því að hluti af húsinu er alveg heill og við viljum ekki tapa lóðinni. Bæjarráð samþykkti ekki hlutaniðurrif, og hefur ákveðið að rífa allt og líka þá byggingarhluta sem brunnu ekki.“
Lóðarhafar hafi sótt um endurnýjun á lóðarleigusamningi bæði fyrir og eftir bruna og segir Svavar bæinn hafa hafnað öllum beiðnum.
„Núna er tekin sú ákvörðun að bærinn leysi til sín lóðina á grundvelli 6. gr. lóðarleigusamnings sem kveður á um að ef ekki er byggt upp að nýju innan hæfilegs frests þá sé bænum heimilt að leysa til sín lóðina. Þeir hafa ítrekað hafnað endurnýjun á lóðarleigusamningi, aldrei svarað erindum okkar um hlutaniðurrif og ætla svo að leysa lóðina til sín á þeim forsendum að ekki hafi verið byggt upp innan hæfilegs frests. Þetta er í mínum huga svipað og að banna manni að færa bíl af bílastæði og hirða svo bílinn af því að hann var ekki færður.“
Valdimar Víðisson bæjarstjóri sagði í viðtali við Morgunblaðið að málið væri nú í höndum lögfræðinga til að fara yfir hvernig réttur þess sem á heila eign liggur gagnvart bænum og svo réttur bæjarins gagnvart þeim.
Ójafn leikur með lögfræðinga
Svavar segir það ójafnan leik að bæjaryfirvöld leggi mál upp með þeim hætti að lögfræðingar finni lausn í máli sem einstaklingar hafa ítrekað reynt að ná samkomulagi um við bæinn.
„Þetta er ójafn leikur og það er ekki á færi einstaklinga eða lítilla fyrirtækja að eiga við bæjaryfirvöld og standa straum af lögfræðikostnaði í svona málum, sem einfaldlega þarf bara að setjast niður og semja um.“
Vegna áforma um byggingu nýs tækniskóla gerði Hafnarfjarðarbær samning við lóðarhafa að Fornubúðum 1, þar sem bærinn keypti lóð með útrunnum lóðarleigusamningi á 425 milljónir.
„Þau kaup miðuðust við um 400 þúsund krónur á fermetra en húsnæðið þar var 1.100 fermetrar. Hvaleyrarbraut 22 er 2.600 fermetrar og ef sama aðferð yrði notuð þá væri kostnaður bæjarins við uppkaupin um 1 milljarður króna,“ segir Svavar Þorsteinsson.